Sölumót 14. apríl
Miðkot, Hemla, Arabær og Ice Events standa fyrir sölumóti að Skeiðvöllum næsta laugardag þann 14. apríl:
Mótið verður með svipuðu sniði og síðast, allir hestar sem taka þátt eru til sölu, þrír dómarar sem gefa tölur, úrslit riðin og frábær verðlaun í boði.
Þær greinar sem keppt verður í er fjórgangur, fimmgangur og tölt T7.
Í skráningu skal koma fram IS-númer og nafn hests, litur, faðir, móðir, verðflokkur, keppnisgrein, knapi og umráðamaður ásamt upplýsinum um símanúmer og netfang seljanda og svo afrekaskrá ef seljandi vill.
Skoðið einnig nýja síðu sem sett var upp í sambandi við þetta sölumót, þar munu síðan einnig verða allar upplýsingar sem þið þurfið að vita og slóðin er southhorses.weebly.com. Þeir sem skrá geta einnig sent mynd,stutta lýsingu af hestinum og link á vídeó (ef það er til) og hesturinn verður einnig skráður inn á heimasíðuna.
Skráning er hafin á netfangið [email protected] og lýkur fimmtudagskvöldið 12.apríl kl 23:59. Skráningargjald er 3000 kr og greiðist inn á
586-14-402187 kt.291169-5389 um leið og skráð er. Endilega senda kvittun á netfangið [email protected].
Skylt er að skrá hrossið í verðflokk.
Verðflokkarnir eru eftirfarandi:
0-600.000
600.000 – 1.200.000
1.200.000 – 1.800.000
1.800.000 – 3.000.000
3.000.000 +
Styttu haustið með EiðfaxaTV