Sölumót
Nú styttist í hið árlega sölumóti sem haldið verður á Skeiðvöllum laugardaginn 5.okt 2013 og hefst kl 11:00. Keppt verður í fjórgangi, fimmgangi og tölt T7. Venjuleg keppni 2-3 inná vellinum í einu, 3 dómarar og allir hestar til sölu. Ein nýjung verður á sölumótinu en það er Reiðhestaflokkur – Hestur teymdur inn, stigið á bak og sýna svo gangtegundir eftir þul, engar tölur eru gefnar í þessum flokki.
Nú þegar eru komnar tæplega 20 skráningar þannig að það stefnir í skemmtilegan laugardag.
Skráning fer fram á [email protected] og er skráningargjald 2000kr og leggist inná banka: 0586-14-402187, kt:291169-5389 og lýkur skráningu fimmtudagskvöld 3.okt kl 23:59.
upplýsingar (útfyllist) fyrir skráningu
IS-númer:
Nafn:
Litur:
F:
M:
Keppnisgrein:
Knapi:
Verð:
Umráðamaður:
Sími:
Netfang/veffang:
Mörg áhugaverð hross hafa komið og selst undanfarin ár, þannig að nú er að taka daginn frá og kannski finnur þú draumahestinn 5.okt 2013.
Miðkot.is
Hemla.is
Iceevents.is
Foli.is
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH