Sölusýning á Sauðárkróki
Hrossaræktarsamband Skagfirðinga mun standa fyrir sölusýningu síðdegis föstudaginn 23. september næstkomandi á Léttfetavelli á Sauðárkróki. Á laugardeginum, 24. september, verður síðan margt um menn og hross í Laufskálarétt eins og fyrri ár.
Skráning hrossa á sölusýninguna fer fram í gegnum netfangið [email protected] eða í síma 453-6440. Ath. að gefa þarf upp fæðingarnr. hests, nafn og símanr. eiganda og knapa.
Síðasti skráningardagur er 20 september og er skráningargjald kr. 2000.- á hest, en kr. 1.500.- ef skráð eru 3 hross eða fleiri.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH