Sölusýning færð
Öll hross eru velkomin á sölusýninguna, ung, eldri, tamin og ótamin.
Sölusýningin í Reiðhöllinni á Flúðum hefur verið færð til um viku, fram til laugardagsins 18. apríl og hefst hún kl. 19:30, að er fram kemur í tilkynningu.
„Þá verða öll hross velkomin, ung, eldri, tamin og ótamin. Skráning þarf að berast fyrir kl. 18:00, fimmtudaginn 16. apríl.
Upplýsingar um hross, IS númer, nafn, uppruna, foreldra og eiganda, ásamt lýsingu á hrossinu og ásettu verði þarf að senda á eftirtalda:
Guðmann Unnsteinsson, [email protected] s. 899 0772
Þorsteinn G. Þorsteinsson, [email protected] s. 848 7767
Skráningargjald er kr. 1.900,- pr. hest.“
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH