Sölusýning í Spretti

  • 21. janúar 2016
  • Fréttir
Skráning er hafin.

Hrossarækt.is og Hest.is í samstarfi við Félag Hrossabænda stendur fyrir Sölusýningu í Samskipahöllinni í Kópavogi þann 29. Janúar næstkomandi kl: 17:00. Eysteinn Leifsson ehf, Gunnar Arnarson ehf og Hestvit ehf bjóða hestamönnum uppá beina útsendingu frá viðburðinum, sem m.a. verður sýnd á Isibless, Eiðfaxa og Ishestnews.se.

Yfir 8.000 tölvur voru að fylgjast með síðustu sýningu þegar mest lét og óhætt að fullyrða að á bakvið flestar tölvur voru fleiri en einn áhorfandi. Búast má við að áhorfendur verða ekki færri að þessu sinni.  Sýningin verður haldin í Samskipahöllinni í Kópavogi og verður veitingasalan opin. Frítt inn! Skráning er hafin og fer fram í gegnum netfangið [email protected] og henni lýkur á miðnætti 25. janúar.  Við skráningu þarf að koma fram nafn og is númer hests ásamt verði. Lýsing (m.a. upplýsingar um ganglag, geðslag, vilja, þjálni, fyrir hvernig knapa hann hentar best og keppnisárangur eigi það við) Almennar upplýsingar (hvernig hægt er að ná í umráðarmann/eiganda og hvar hesturinn er staðsettur til prufu) 

Verðflokkar: Vinsamlegast gefið upp verð við skráningu (verðið má vera með 500 þús króna svigrúmi). Ath. að verðin birtast ekki á prenti en verða lesin upp í hátalakerfi. Eftir að skráningum lýkur verður raðað í verðflokka.

ATH að hámark verður sett á fjölda hrossa á sýningunni og ef til þess kæmi að sýningin fyllist verða þeir sem skráðu síðastir frá að hverfa og þá fækkað í fjölmennasta verðflokknum. Skráningagjald er 5.000 krónur á hest  

Skráningar berist á netfangið [email protected] Símanr: 863-8813 (Elka) og 893-3600 (Maggi)  Greiða þarf skráningagjaldið inná reikning 0537-26-553191 kt. 190773-5319 eigi síðar en í hádeginu 26. Janúar.
—- 
Sales Show in Samskipahöllin, Sprettur (Kópavogur) 29th januar at 5 pm (Iceland) and 6 pm (Europe). Great change to find your dream horse. Book your ticket to Iceland for this weekend or watch the show live on www.isibless.de, www.eidfaxi.is or www.ishestnews.se Free entry and everyone is welcome!

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link