Sölusýning Náttfara
Hrossaræktarfélagið Náttfari áformar að halda sölusýningu á Melgerðismelum stóðréttardaginn 8. október n.k.
Um er að ræða bæði tamin hross, sýnd í reið, og trippi sem kynnt verða í Melaskjóli, reiðhöllinni Melgerðismelum.
Hrossarækt í Eyjafirði byggir á traustum grunni og úr henni hafa alla tíð komið úrvalshross, áberandi í keppni og til kynbóta.
Nánari útfærzla sýningarinnar verður auglýst innan nokkurra daga.
Stjórn Náttfara
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH