„Sonur hennar Óttu minnar“

  • 29. desember 2010
  • Fréttir
"Sonur hennar Óttu minnar"

Það er mikill hugur í tamningafólki þessa dagana, hátíðardögum að fækka og veður orðin betri. Eiðfaxi var á ferðinni í Mosfellsbænum…

og hitti þar fyrir Súsönnu Ólafsdóttur er hún var í reiðtúr á brúnum fola, fjögurra vetra gömlum.
„Hann heitir Óskar frá Hvítárholti og er sonur hennar Óttu minnar og Víðis frá Prestsbakka“ sagði Súsanna. „Mér finnst hann fara mjög vel af stað, er reyndar rétt að byrja að ríða honum einum út. Hann velur gangtegundir eftir aðstæðum, virðist vera jafnvígur á allt“ segir Súsanna og kveður með orðunum: „Það þýðir ekkert að hanga í einhverjum kjaftagangi“

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link