Spáð í spilin fyrir Heimsmeistaramót

  • 31. júlí 2023
  • Fréttir
Nú styttist í Heimsmeistaramót Íslenska hestsins í Hollandi en minna en vika er til stefnu.

Af því tilefni fékk Eiðfaxi nokkra hestamenn til þess að spá í spilin með sér um hvaða knapi og hestur færu með sigur af hólmi í hverri grein. Við byrjum á Hauki Baldvinssyni hrossaræktanda í Austurási.

Fullorðnir

Tölt T1: Jóhanna Margrét Snorradóttir og Bárður frá Melabergi. Viðar og Þór verða í A-úrslitum.
Fjórgangur V1:  Jóhanna Margrét Snorradóttir og Bárður frá Melabergi.
Fimmgangur F1: Jón Stenild og Eilífur frá Teglborg, Sara verður í öðru sæti.
Slaktaumatölt T2: Christina Lund og Lukku-Blesi.
Gæðingaskeið: Elvar Þormarsson sigrar það með stæl, Fjalladís frá Fornusöndum.
250 m. skeið: Hrólfur frá Hafnarfirði og Alexander Fedorov (DE). Íslensku hestarnir verða stórhættulegir í toppbaráttunni.
100 m. skeið: Teitur Árnason og Drottning frá Hömrum II og hinir íslenku keppendurnir verða sjóðhetir og raða sér í efstu sætin.
Samanlagðar fjórgangsgreinar: Jóhanna Margrét og Bárður frá Melabergi.

Ungmenni

Tölt T1: Herdís og Kvarði.
Fjórgangur V1:  Jón Ársæll og Frár.
Fimmgangur F1: Treystum á Glódísi þar.
Slaktaumatölt T2:
Gæðingaskeið: Benni klárar þann titil með stæl.
250 m. skeið:
100 m. skeið: Líklegur sigurvegari þar Sigríður Ingibjörg.
Samanlagðar fjórgangsgreinar: Jón Ársæll og Frár.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link