„Spáin er góð, brautin er frábær og við klár fyrir met“
Kappreiðarnar hefjast kl. 19.00 en keppt verður í 250 m., 150 m. og 100 m. flugskeiði. Þegar Eiðfaxa bar að garði í gær voru Sörlafélagar að vinna við að stilla upp startbásum og fara yfir þá og gera klárt fyrir kappreiðarnar.
„Við erum að undirbúa kappreiðar morgundagsins og við hlökkum til að taka á móti keppendum. Þetta verður góð æfing fyrir okkur Sörla fólk enda eru kappreiðarnar mikilvægur þáttur á Íslandsmóti,“ segir Darri Gunnarsson, Sörlafélagi og framkvæmdastjóri Íslandsmóts fullorðinna og ungmenna í ár en mótið verður haldið á félagssvæði Sörla 16.-20. júní nk.
„Völlurinn verður mældur upp í kvöld, start básarnir eru klárir, við munum hafa dómara við hlaupagæslu og myndavél á básunum. Við erum því klár fyrir met ef þannig liggur á knöpum og hestum.“
„Spáin er góð, brautin er frábær og við klár fyrir met“
150 plássum bætt við
Enn þarf að fresta skráningum á kynbótasýningar
Kylja sló í gegn í 1.holli ársins á kynbótasýningum
„Höfum þróast með því sem er að gerast í heiminum“
Glæsilegu WR Íþróttamóti Sleipnis lokið