Spennan magnast í töltinu
Nú þegar 32 dagar eru í að Landsmót hestamanna í Reykjavík hefjist, eru margir að velta fyrir sér hvað stöðulistum í tölti og skeiði líður.
Það er búið að halda allnokkur íþróttamót í vor og þar að auki eru tölt- og skeiðgreinar oft í boði samhliða gæðingakeppnunum og úrtökunum.
Það er vert að hnykkja á reglunum sem viðhafðar eru við framkvæmd og val í töltkeppni á landsmótum. Þær helstu eru þessar:
Knapar 18 ára og eldri sem ná inn á topp 30 listann í tölti T1 eða T3 í opnum flokki, þ.e. árangur úr töltkeppni í ungmennaflokki gildir ekki.
Knapar mega koma með fleiri en einn hest í tölt á landsmóti, séu þeir með fleiri en einn hest inni á endanlegum stöðulista.
Stöðulisti í tölti lítur svona út í dag, 24. maí. Athugið þó að verið getur að einhver íþróttamót eigi eftir að koma fram í Sportfeng (t.d. íþróttamót Harðar). Í fyrra var knapi og hestur í 30.sæti með 7,30 í einkunn, þannig að listinn á trúlega eftir að breytast allnokkrum sinnum fram að LM í Reykjavík.
# Knapi Hross Einkunn
1 Sigursteinn Sumarliðason IS2004287804 Alfa frá Blesastöðum 1A 8,37
2 Artemisia Bertus IS2004187807 Óskar frá Blesastöðum 1A 7,87
3 Hinrik Bragason IS2001155170 Smyrill frá Hrísum 7,87
4 Jakob Svavar Sigurðsson IS2003280339 Árborg frá Miðey 7,83
5 Eyjólfur Þorsteinsson IS2004158875 Háfeti frá Úlfsstöðum 7,77
6 Siguroddur Pétursson IS2001258430 Glóð frá Kýrholti 7,77
7 Hulda Gústafsdóttir IS2002125475 Sveigur frá Varmadal 7,73
8 Eyjólfur Þorsteinsson IS2003177188 Klerkur frá Bjarnanesi 1 7,7
9 Sara Ástþórsdóttir IS2004284669 Díva frá Álfhólum 7,7
10 Reynir Örn Pálmason IS1996136512 Baldvin frá Stangarholti 7,57
11 Árni Björn Pálsson IS2004186594 Stormur frá Herríðarhóli 7,5
12 John Sigurjónsson IS2002138425 Dáti frá Hrappsstöðum 7,5
13 Sigurbjörn Bárðarson IS2002135538 Jarl frá Mið-Fossum 7,5
14 Viðar Ingólfsson IS2005258886 Vornótt frá Hólabrekku 7,5
15 Siguroddur Pétursson IS2003158620 Hrókur frá Flugumýri II 7,4
16 Guðmundur Björgvinsson IS2005101184 Gaumur frá Dalsholti 7,37
17 Leó Geir Arnarson IS2004284537 Krít frá Miðhjáleigu 7,37
18 Lena Zielinski IS2004286543 Sóllilja frá Hárlaugsstöðum 2 7,27
19 Sara Ástþórsdóttir IS2005284666 Sóllilja frá Álfhólum 7,27
20 Anna S. Valdemarsdóttir IS2003187712 Náttar frá Vorsabæjarhjáleigu 7,23
21 Bylgja Gauksdóttir IS2003225401 Grýta frá Garðabæ 7,23
22 Ólafur Andri Guðmundsson IS2005286911 Nýey frá Feti 7,23
23 Högni Sturluson IS2002157420 Ýmir frá Ármúla 7,2
24 Viðar Ingólfsson IS2002135567 Segull frá Mið-Fossum 2 7,2
25 Jón Páll Sveinsson IS2003180515 Seifur frá Baldurshaga 7,13
26 Sigurbjörn Bárðarson IS2004287050 Katrín frá Vogsósum 2 7,13
27 Hulda Gústafsdóttir IS2005181964 Ketill frá Kvistum 7,1
28 Aðalheiður Anna Guðjónsdóttir IS2004125132 Bragur frá Seljabrekku 7,07
29 Berglind Ragnarsdóttir IS2001135836 Frakkur frá Laugavöllum 7,07
30 Erla Guðný Gylfadóttir IS1999135658 Erpir frá Mið-Fossum 7,07
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH