Spennandi að sjá hverjir ná heiðursverðlaunum
Skýr frá Skálakoti vantar átta afkvæmi til þess að ná lágmörkum um fjölda sýndra afkvæma til heiðursverðlauna
Nýtt kynbótamat var birt í apríl og þá varð ljóst hvaða hestar ættu möguleika á afkvæmaverðlaunum bæði til 1.verðlaun og heiðursverðlauna.
Eftir að Landsmóti var frestað var blásið til Landssýningar kynbótahrossa þar sem 10 efstu hross landsins í flokkum hryssa og stóðhesta verða verðlaunuð og ítarlega kynnt.
Á Landssýningu munu einnig verða afkvæmasýningar stóðhesta.
Landssýningin fer fram laugardaginn 27.júní og verður streymt beint hér á vef Eiðfaxa á þremur tungumálum.
Í dag hófust kynbótasýningar á fjórum stöðum um landið og verður áhugavert að sjá hvaða hestar ná lágmörkum hvað fjölda afkvæmi varðar en nýtt kynbótamat verður reiknað út að vorsýningum loknum.
Samantektin hér fyrir neðan miðar við áður en sýningar hófust í morgun og því ekki ólíklegt að einhver afkvæmi þessarra stóðhesta hafi bæst við nú þegar.
Óskasteinn frá Íbishóli hefur nú þegar náð yfir 50 sýnd afkvæmi því það er búið að sýna undan honum sjö nú í vor og því kominn með 53 afkvæmi í fullnaðardóm í heildina.
Skýr frá Skálakoti á orðið 42 sýnd afkvæmi áður en sýningar í þessari viku hófust og vantar því átta afkvæmi upp á það að ná í 50.
Undan Loka frá Selfossi eru nú kominn sex ný hross og á hann því orðið 48 sýnd afkvæmi en vantar einungis tvö til að ná í 50.
Hrannar Frá Flugumýri II á orðið 39 dæmd afkvæmi og nálgast því heiðursverðlaunin hratt.
Einungis eitt nýtt afkvæmi hefur komið til dóms undan Kjerúlf það sem af er vori og á hann því orðið 41 dæmt afkvæmi og vantar, eins og Hrannari, 9 stykki.
Til viðbótar við þessa hesta hefur Sveinn-Hervar frá Þúfu nú þegar náð lágmörkum til heiðursverðlauna og á hvorki meira né minna en 122 dæmd afkvæmi.
| Hestur | Áður sýnt | Ný | Samtals |
| Sveinn-Hervar frá Þúfu í Landeyjum | 122 | 0 | 122 |
| Óskasteinn frá Íbishóli | 46 | 7 | 53 |
| Loki frá Selfossi | 42 | 6 | 48 |
| Skýr frá Skálakoti | 30 | 12 | 42 |
| Hrannar frá Flugumýri II | 32 | 7 | 39 |
| Kjerúlf frá Kollaleiru | 40 | 1 | 41 |
Styttu haustið með EiðfaxaTV