Spennandi ár framunda
„Aðalfundur Gæðingadómarafélagsins var haldinn í Harðarbóli í Mosfellsbæ föstudagskvöldið 23 október. Mætingin var fín þó það væri að sjálfsögðu betra að allir félagsmenn myndu mæta og koma skoðunum sínum á framfæri. Sigurður Stramfjörð Pálsson sem gegnt hafði stöðu formanns síðastliðinn tvö ár, gaf ekki kost á sér áfram og Magnús Sigurjónsson var einróma skipaður nýr formaður félagsins.
Stjórn félagsins fyrir starfsárið 2015-2016 er því þannig skipuð.
Formaður: Magnús Sigurjónsson
Varaformaður: Davíð Jónsson
Ritari: Gísli Guðjónsson
Gjaldkeri: Pétur Vopni Sigurðsson
Vefstjóri: Ingibergur Árnason
Meðstjórnendur: Stefán Ágústsson og Helga Claessen
Fyrsta verkefni stjórnar var að skipa fræðslunefnd til starfa og í hana voru skipuð;
Sindri Sigurðsson formaður, Logi Laxdal,Marjolijn Tiepen,Sigurður S. Pálsson og Valdimar Ólafsson.
Mjög spennandi starfsár er framundan hjá gæðingadómarafélaginu. Nýdómaranámskeið og landsdómaranámskeið er áætlað að halda á starfsárinu, en það verður nánar auglýst síðar. Upprifjunarnámskeið verða að sjálfsögðu á sínum stað á Íslandi auk námskeiða víðs vegar um Evrópu. Landsmót á Hólum er að sjálfsögðu ofarlega í huga GDLH sem mun senda góðan hóp samstilltra dómara norður og hjálpa til við að gera landsmótið glæsilegt. Stjórn GDLH lítur björtum augum fram á veginn og hlakkar til að takast á við komandi starfsár með sínum félagsmönnum.
Viðburðir sem stjórn og fræðslunefnd stendur fyrir verða nánar auglýstir síðar.“
f.h. stjórnar
Gísli Guðjónsson
Tillaga um einn varanlegan Landsmótsstað lögð fyrir landsþing
Landsliðsteymi Danmerkur fyrir árið 2027 klárt