Spennandi fimmgangur framundan
Fimmgangurinn er á fimmtudaginn og er ráslistinn er klár. Helga Una Björnsdóttir er fyrst í braut en hún keppir fyrir lið Hrímni/Export hesta. Jakob S. Sigurðsson sigraði þessa grein í fyrra á Ský frá Skálakoti en þeir félagar eru skráðir til leiks. Sylvía SIgurbjörnsdóttir og Teitur Árnason voru einnig í A úrslitum í fyrra og mæta þau með sömu hesta, Sylvía mætir með Héðin Skúla frá Oddhól en Teitur, Sjóð frá Kirkjubæ. Þórarinn Ragnarsson, Viðar Ingólfsson og Guðmundur Björgvinsson voru líka í úrslitum en þeir mæta allir með nýja hesta. Það eru margir spennandi hestar skráðir til leiks, gamlar kempur sem og nýjar óreyndar vonarstjörnur. Einn villiköttur er skráður til leiks og keppir hann fyrir hönd Torfhús retreat en gaman verður að sjá hver það er!
Mótið fer fram í Samskipahöllinni í Spretti en húsið opnar kl 17:00 og hefst keppni kl. 19:00. Það er nóg um að vera um kvöldið svo það er um að gera að mæta tímalega, sýna sig og sjá aðra.
Dagskrá fimmtudagsins:
17:00 – Húsið opnar, dýrindis veitingar í boði.
17:45 – Hesta-quiz. Æsispennandi spurningakeppni um allt sem við kemur hestamennsku. Vegleg verðlaun í boði.
19:00 – Keppni hefst
Ekki láta kvöldið framhjá ykkur fara en hægt er að tryggja sér miða inn á tix.is eða í andyri. Sýnt verður beint á RÚV2 eða inn á oz.com/meistaradeildin.
Nr. Knapi Hestur
1 Helga Una Björnsdóttir Júlía frá Syðri-Reykjum
2 Sigurður Sigurðarson Árdís frá Litlalandi
3 Viðar Ingólfsson Hængur frá Bergi
4 Bergur Jónsson Spurning frá Syðri-Gegnishólum
5 Olil Amble Álfarinn frá Syðri-Gegnishólum
6 Ásmundur Ernir Snorrason Kaldi frá Ytra-Vallholti
7 Villiköttur
8 Matthías Leó Matthíasson Galdur frá Leirubakka
9 Þórdís Erla Gunnarsdóttir Hrafnar frá Auðsholtshjáleigu
10 Teitur Árnason Sjóður frá Kirkjubæ
11 Sigurður Vignir Matthíasson Milljarður frá Barká
12 Ragnhildur Haraldsdóttir Þróttur frá Tungu
13 Sylvía Sigurbjörnsdóttir Héðinn Skúli frá Oddhóli
14 Hinrik Bragason Byr frá Borgarnesi
15 Þórarinn Ragnarsson Ronja frá Vesturkoti
16 Árni Björn Pálsson Jökull frá Breiðholti í Flóa
17 Guðmundur Björgvinsson Elrir frá Rauðalæk
18 Sigurbjörn Bárðarson Flóki frá Oddhóli
19 Gústaf Ásgeir Hinriksson Sproti frá Innri-Skeljabrekku
20 Jakob Svavar Sigurðsson Skýr frá Skálakoti
21 Arnar Bjarki Sigurðarson Snillingur frá Íbishóli
22 Hanna Rún Ingibergsdóttir Dropi frá Kirkjubæ
23 Hulda Gústafsdóttir Roði frá Brúnastöðum 2
24 Aðalheiður Anna Guðjónsdóttir Brimnir frá Efri-Fitjum
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH