Spennandi fimmgangur MD
Þá er ráslistinn klár fyrir fimmganginn en sú skemmtilega aðferð hefur verið tekin upp að rásröð er dregin út í beinni útsendingu á Facebook. Það eru þeir Sigurbjörn Viktorsson dómari í deildinni og Logi Laxdal stjórnarmaður meistaradeildar sem hafa séð um úrdráttinn en þetta fyrirkomulag gerir ákvörðun rásraðar opnari og meira spennandi. Samkvæmt upplýsingum frá stjórnarmanni deildarinnar hefur þessi háttur lagst vel í áhorfendur og hafa hundruð horft á úrdráttinn í beinni útsendingu.
Fyrstur í braut er Hinrik Bragason á Byr frá Borgarnesi en þeir eru orðnir nokkuð reyndir í þessari keppnisgrein. Keppnin hefst kl. 19:00 en hún fer fram í Samskipahöllinni í Spretti í Kópavogi. Húsið opnar 17:00
Margt verður um gæðinginn í Samskipahöllinni þetta kvöldið en á listanum eru margir hátt dæmdir stóðhestar þ.á.m. Hrafn frá Efri – Rauðalæk en knapi á honum er Daníel Jónsson. Hrafn hefur hlotið 9,03 fyrir hæfileika og þar af 9.5 fyrir skeið. Matthías Leó mætir með Hafstein frá Vakursstöðum en hann höfum við séð áður undir handleiðslu Teits Árnasonar en Hafsteinn hefur hlotið 9.5 fyrir skeið í kynbótadómi. Árni Björn Pálsson mætir með tíu skeiðarann Roða frá Lyngholti og Olil Amble mætir með engan annan en Álfarinn frá Syðri-Gegnishólum sem hlaut 9.5 fyrir skeið í kynbótadómi. Sigurbjörn Bárðason mætir með Nóa frá Stóra-Hofi en hann hefur einnig hlotið 9.5 fyrir skeið. Sigurvegari fimmgangsins frá því í fyrra Hulda Gústafsdóttir teflir nú fram Gangster frá Árgerði en Gangster vakti mikla athygli í A flokki á LM2014 á Hellu. Íslandsmeistarinn í fimmgangi Þórarinn Ragnarsson mætir með Hilding frá Bergi en þeir voru í A úrslitum í þessari grein í fyrra.
Ekki láta þessa veislu framhjá ykkur fara og tryggið ykkur miða inn á tix.is en einnig verða seldir miðar í anddyri. Einnig er hægt að horfa beint frá keppninni inn á oz.com og á Stöð 2 sport.
1 Hinrik Bragason Byr frá Borgarnesi
2 Guðmundur Björgvinsson Þór frá Votumýri 2
3 Matthías Leó Matthíasson Hafsteinn frá Vakurstöðum
4 Ævar Örn Guðjónsson Kolskör frá Hárlaugsstöðum
5 Bergur Jónsson Stúdent frá Ketilsstöðum
6 Daníel Jónsson Hrafn frá Efri-Rauðalæk
7 Olil Amble Álfarinn frá Syðri-Gegnishólum
8 Sigurður Vignir Matthíasson Gormur frá Efri-Þverá
9 Ragnhildur Haraldsdóttir Þróttur frá Tungu
10 Jakob Svavar Sigurðsson Skýr frá Skálakoti
11 Hulda Gústafsdóttir Gangster frá Árgerði
12 Ásmundur Ernir Snorrason Kaldi frá Ytra-Vallholti
13 Sigurður Sigurðarson Álfsteinn frá Hvolsvelli
14 Viðar Ingólfsson Óskahringur frá Miðási
15 Teitur Árnason Sjóður frá Kirkjubæ
16 Sylvía Sigurbjörnsdóttir Héðinn Skúli frá Oddhóli
17 Sigursteinn Sumarliðason Krókus frá Dalbæ
18 Þórdís Erla Gunnarsdóttir Vaki frá Auðsholtshjáleigu
19 Sigurbjörn Bárðarson Nói frá Stóra-Hofi
20 Hans Þór Hilmarsson Kylja frá Stóra-Vatnsskarði
21 Aðalheiður Anna Guðjónsdóttir Brimnir frá Efri-Fitjum
22 Ólafur Brynjar Ásgeirsson Freyja frá Vöðlum
23 Þórarinn Ragnarsson Hildingur frá Bergi
24 Árni Björn Pálsson Roði frá Lyngholti
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH