Spennandi keppni á Fjórðungsmóti – hver sigrar B-flokk?
Arna frá Skipaskaga varð efst í B-flokki á FM2017 með 9,20 í einkunn. Knapi: Sigurður Sigurðarson ljósmynd/Eiðfaxi
Fjórðungsmót Vesturlands fer fram í Borgarnesi 7.-11. Júlí. Venju samkvæmt verður þar keppt í gæðingakeppni og eru margir stórkostlegir gæðingar skráðir til leiks, ljóst er að það verður spennandi að fylgjast með því hvaða hestur og knapi standa uppi sem sigurvegarar í öllum flokkum gæðingakeppninnar að mótinu loknu.
Í B-flokki gæðinga eru 52 hestar skráðir til leiks. Árið 2017 þegar síðast var haldið Fjórðungsmót í Borgarnesi var það Arna frá Skipaskaga sem efst stóð með einkunnina 9,20 knapi á henni var Sigurður Sigurðarson. Blaðamaður Eiðfaxa rýndi í þátttökulista með það að markmiði að finna út hverjir væru sigurstranglegastir í ár.
Adrían frá Garðshorni á Þelamörk. knapi: Daníel Jónsson
Adrían hlaut 8,77 í einkunn í forkeppni á úrtökumóti Þyts og er sá hestur sem mætir með hæstu einkunn inn á mótið. Hann hefur gert það gott í gæðingakeppni og stóð til að mynda efstur í Sörla á síðasta ári. Þá skartar hann einnig glæsilegum kynbótadóm og stóð efstur í flokki fimm vetra stóðhesta á LM2018. Daníel Jónsson knapi hans er einn reynslumesti knapi landsins og til alls líklegur.
Brynjar frá Syðri-Völlum. knapi: Jakob Svavar Sigurðsson
Brynjar kemur inn fyrir hestamannafélagið Þyt þar sem hann hlaut 8,66 í forkeppni í B-flokki. Hann hefur hlotið góðan kynbótadóm og er að feta sín fyrstu spor í keppni. Jakob Svavar vann B-flokk á LM2016 á Nökkva frá Syðra-Skörðugili og veit því hvað þarf til að fara með sigur á stórmóti í þessari grein.
Eyja frá Hrísdal. knapi: Siguroddur Pétursson
Eyja kemur inn á mótið fyrir Snæfelling þar sem hún hlaut 8,51 í forkeppni og stóð að lokum efst í A-úslitum með 8,72 í einkunn. Þetta er þriðja tímabilið sem Eyja er í keppni en hún hefur að auki hlotið 1.verðlaun í kynbótadómi. Siguroddur Pétursson þekkir vel til á vesturlandi og líklegt má telja að hann mæti í stuði!
Hraunar frá Vatnsleysu. Knapi: Arndís Brynjólfsdóttir
Hraunar frá Vatnsleysu keppir fyrir Skagfirðing þar sem hann hlaut 8,46 í úrtöku. Hraunar er reynslumikill keppnishestur sem oft hefur gert það gott. Knapi á honum er Arndís Brynjólfsdóttir en þau tvö gjörþekkjast og það mun standa með þeim á Fjórðungsmótinu.
Hrönn frá Ragnheiðarstöðum. Einkunn: 8,52 knapi:Daníel Jónsson
Hrönn er ein af hæst dæmdu klárhryssum landsins í kynbótadómi. Hún mætti í sína fyrstu gæðingakeppni á úrtökumóti Þyts þar sem hún hlaut 8,52 í einkunn. Knapi á henni er Daníel Jónsson.
Hylur frá Flagbjarnarholti. knapi: Guðmar Þór Pétursson
Glæsigripurinn Hylur er fulltrúi Borgfirðings þar sem hann hlaut 8,43 í forkeppni í sinni fyrstu gæðingakeppni. Knapi á honum er Guðmar Þór Pétursson sem ætlar sér að blanda sér í baráttuna um sigur í B-flokki á heimavelli í Borgarnesi.
List frá Þúfum. knapi: Mette Mannseth
List kemur inn á mótið með einkunnina 8,66 en hún hefur staðið sig vel í gæðingakeppni og hefur m.a. hlotið einkunnina 9,16 í úrslitum. Hún er líkt og Hrönn frá Ragnheiðarstöðum með feykilega háan kynbótadómn sem klárhryssa. Knapi hennar, Mette Mannseth, reið Trymbli frá Stóra-Ási til sigurs í A-flokki á síðasta Fjórðungsmóti og hefur nú hug á því að bæta við B-flokks sigri í safnið.
Melódía frá Hjarðarholti. knapi: Elín Magnea Björnsdóttir
Melódía hlaut 8,58 í forkeppni á úrtökumóti Borgfirðins þar sem hún stóð einnig efst í úrslitum en það gerði hún einnig árið 2020. Elín Magnea knapi hennar hefur einnig keppt með góðum árangri á henni í íþróttakeppni og sýnt hana í kynbótadómi þar sem hún hlaut m.a. einkunnina 10,0 fyrir fet.
Steggur frá Hrísdal. knapi: Siguroddur Pétursson
Þeir félagar Steggur og Siguroddur Pétursson eru eitt reyndasta keppnispar landsins og hafa staðið í fremstu röð bæði í gæðinga- og íþróttakeppni. Steggur hlaut 8,70 í forkeppni á hestaþingi Snæfellings. Þeir voru í úrslitum í þessari grein á Fjórðungsmóti árið 2017 þar sem hlutskipti þeirra var 4.sæti. Nú ætla þeir sér á toppinn.
Tumi frá Jarðbrú. knapi: Þórarinn Eymundsson
Tumi hóf keppnisferil sinn á síðasta ári og hefur verið að vaxa ásmegin undir stjórn Þórarins Eymundssonar. Tumi hlaut 8,44 í einkunn á úrtökumóti Skagfirðings en gerði sér lítið fyrir og varð efstur í úrslitum með glæsi-einkunnina 9,06.
Þorsti frá Ytri-Bægisá. knapi: Sigurður Sigurðarson
Þorsti hlaut einkunnina 8,56 í forkeppni á úrtökumóti Dreyra. Knapi hans Sigurður Sigurðarson er einn sigursælasti knapi landsins og veit vel hvað þarf til að sigra á stórmótum. Hann hefur titil að verja í þessari grein á Fjórðungsmóti og nú er að bíða og sjá hvort hann og Þorsti hafi það.
Taka skal fram að upptalning þessi er til gamans gerð og svo sannarlega eru fleiri hestar sem geta farið með sigur af hólmi í B-flokki gæðinga á Fjórðungsmótinu því alls eru skráðir 52 hestar til leiks. Það verður að minnsta kosti spennandi að fylgjast með úr brekkunni í Borgarnesi dagana 7.-11.júlí.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH