Spennandi undirbúningstímabil

  • 23. janúar 2013
  • Fréttir
Spennandi undirbúningstímabil

„Landsliðsnefnd LH og Hafliði Halldórsson liðsstjóri íslenska landsliðsins sem fer á HM í Berlín í ágúst, hafa sett saman dagskrá fyrir áhugasama landsliðskandídata fram á vor. Dagskráin felur í sér námskeiða- og fyrirlestraröð með þekktum reiðkennurum, þjálfurum og fyrirlesurum. 

NÁMSKEIÐ
Námskeiðin verða tvískipt. Annars vegar verða þær Rúna Einarsdóttir og Olil Amble með námskeið fyrir ungmenni. Þetta eru þrjár helgar:
• 26. – 27. janúar 
• 16. – 17. febrúar 
• 6. – 7. Apríl
Á námskeiðaröð fyrir fullorðna verður aðalkennarinn Julio Borba og þær Rúna Einarsdóttir og Olil Amble til aðstoðar. Í boði verða þrjár helgar:
• 19. – 20. janúar – LOKIÐ
• 26. – 28. febrúar 
• 20. – 22. apríl 
Skráningar fara fram hjá liðsstjóra og skulu þær berast með tölvupósti á netfangið [email protected]. Fram þarf að koma nafn knapa, sími, netfang og nafn hests. Einungis er hægt að skrá á eitt námskeið í einu, þ.e. það námskeið sem næst er á dagskránni.
Námskeiðin fara fram í reiðhöll Eldhesta og hefjast kl. 9:00. Þau eru ætluð öllum þeim sem áhuga hafa á undirbúningi fyrir HM-úrtöku í júní. 
FYRIRLESTRAR
Fjölbreyttir fræðslufyrirlestrar verða í boði í vetur og a.m.k ein sýnikennsla. 
Febrúar:
• Sigríður Björnsdóttir dýralæknir – sóttvarnir, munnáverkar og álagsmeiðsl
• Sigurður Torfi, hófhirða 
• Arnar  Grant,  heilsurækt og mataræði 
Fundur haldinn í húsakynnum ÍSÍ 19. febrúar kl. 17:00
Mars:
• Liðstjóri fer yfir verkefni og stöðu mála
• Hulda G Geirsdóttir og Hörður Hákonarson alþjóðadómarar – áherslur dóma og dómskala
Fundur haldinn í húsakynnum ÍSÍ 12. mars kl. 17:00
 
Apríl:
• Liðsstjóri fer yfir stöðu mála 
• Sýnikennsla: Jóhann Skúlason & Agnar Snorri Stefánsson
Sýnikennslan verður  í reiðhöllinni hjá Eldhestum föstudaginn 5. apríl kl. 16:00
 
Júní:
• Keppnisfyrirlestur og keppnistækni
Fyrirlesarar:  Alfreð Gíslason og Sigurbjörn Bárðarson ódagsett
• Keppnisfyrirlestur og keppnistækni
Fyrirlesarar: Guðmundur Guðmundsson og Sigurður Sæmundsson
Þessir fyrirlestrar eru ódagsettir vegna þess að ekki er vitað nákvæmlega hvenær og hvar þeir verða. En þessir fyrirlestrar verða kynntir tímanlega.
• Úrtaka fyrir HM 12-17  júní í samvinnu við hestamannafélagið Fák og Gullmótið
 
Landsliðsnefnd hvetur áhugasama til að fylgjast með heimasíðu LH hvað varðar tilkynningar frá viðburðum og einnig sérstakur flipi í valmynd síðunnar sem heitir „Landslið“ og þar er að finna allar upplýsingar um dagskránna framundan sem og aðrar upplýsingar tengdar landsliðinu og HM2013.“ segir í tilkynningu frá Landsliðsnefnd LH
 
 
 
 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link