Spennandi ungfolasýning
Hin árlega ungfolasýning Hrossaræktarsamtaka Suðurlands fer fram á laugardaginn kemur, 30. mars nk., í Ölfushöllinni á Ingólfshvoli.
Sautján spennandi folar eru skráðir til leiks en þar á meðal má finna fola undan Stormi frá Leirulæk, Þresti frá Hvammi, Eldjárni frá Tjaldhólum, Stála frá Kjarri, Töfra frá Kjartansstöðum, Kráki frá Blesastöðum, Sæ frá Bakkakoti og fleirum.
Folarnir eru fæddir 2010 og 2011 og verða þeir allir fyrst metnir fyrir sköpulag, en dómar hefjast kl. 12:30 og svo verða þeir metnir fyrir hreyfingar og hefst sá þáttur kl. 15:30 og mun standa til kl. 17:30.
Dómarar raða efstu fimm folunum í hvorum flokki. Áhorfendur velja síðan álitlegasta folann í hverjum flokki. Efstu dómaravöldu folarnir úr hvorum flokki munu koma fram á stóðhestaveislunni um kvöldið á sama stað.

Aðgangur að ungfolasýningunni er ókeypis og eru áhugamenn um framtíðarstjörnur hrossaræktarinnar hvattir til að fjölmenna, fylgjast með folunum og taka þátt í áhorfendavalinu. Allir velkomnir í Ölfushöllina!
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH