Sprettharðir hjá Sigurbirni

  • 27. júní 2012
  • Fréttir
Sprettharðir hjá Sigurbirni

Það skákaði enginn Sigurbirni Bárðasyni í skeiðkappreiðum kvöldsins. Auk þess að eiga besta tímann í 250 metra skeiði fór hinn eitursnöggi Óðinn frá Búðardal 150 metranna á 14,59 sekúndum í kvöld sem reyndist besti tími í fyrstu tveimur umferðum greinarinnar. Síðari tvær umferðinar fara fram á morgun kl. 16.15.

 
  1. Óðinn frá Búðardal og Sigurbjörn Bárðason – 14,59
  2. Vera frá Þóroddsstöðum og Eyjólfur Þorsteinsson – 14,93
  3. Veigar frá Varmalæk og Teitur Árnason – 15,02
  4. Funi frá Hofi og Jakob Svavar Sigurðsson  – 15,02
  5. Hrappur frá Sauðakróki og Elvar Einarsson – 15,16
  6. Jóhannes Kjarval frá Hala og Svavar Örn hreiðarsson – 15,20
  7. Steinn frá Bakkakoti og Sölvi Sigurðarson – 15,49 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link