Sprettur ræður yfirþjálfara fyrir félagið

  • 2. október 2021
  • Fréttir
Hestamannafélagið Sprettur hefur ráðið Þórdísi Önnu Gylfadóttur sem yfirþjálfara félagsins.

Yfirþjálfari tekur að sér kennslu og felur það í sér umsjón með námskeiðahaldi félagsins. Yfirþjálfari stýrir og hefur faglega umsjón með þjálfun félagsmanna, þá sérstaklega yngri flokka og nýliða. Yfirþjálfari starfar í samstarfi við framkvæmdastjóra, fræðslunefnd og æskulýðsnefnd félagsins.

Þórdís er menntaður reiðkennari frá Háskólanum á Hólum og hefur víðtæka reynslu af ýmiskonar kennslu og þjálfun. Þórdís hefur einnig meistaragráðu í verkefnastjórnun frá Háskólanum í Reykjavík, diplóma í viðburðastjórnun frá Háskólanum á Hólum og er einnig núverandi meistarnemi við hestafræðideild Háskólans á Hólum. Þórdís starfar sem verkefnastjóri Knapamerkjanna hjá Háskólanum á Hólum og er einnig stundakennari þar. Þórdís er sjálfstætt starfandi reiðkennari og sinnir reiðkennslu fyrir Sprett.

Staða yfirþjálfara er spennandi tilraunaverkefni til 10 mánaða sem felur í sér að færa Hestamannafélagið Sprett nær því að starfa á sama hátt og önnur íþróttafélög bæjafélaganna Garðabæjar og Kópavogs, að aðstoða iðkendur við að stunda hestaíþróttir á árs grundvelli. Þórdís tekur til starfa 1.10.2021 og gildir samingurinn til 1.8.2022.

Hestamannafélagið Sprettur býður Þórdísi velkomna til starfa og hlakkar til samstarfsins. Hægt verður að hafa samband við Þórdísi í gengum netfanið [email protected]

 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link