Spuni frá Vesturkoti á flest afkvæmi á Heimsmeistaramótinu 2023

  • 7. ágúst 2023
  • Fréttir

Ljósmynd: Henk Peterse

Á Heimsmeistaramótinu eru skráð til leiks 162 keppnispör og 39 kynbótahross frá 17 aðildarlöndum FEIF. 

Ef skoðaðir eru feður hrossanna sem skráð eru á Heimsmeistaramótið kemur í ljós að Spuni frá Vesturkoti á flest afkvæmi sem koma fram á mótinu. Alls eru þau sex, tvo kynbótahross og fjögur skráð í íþróttakeppnina. Næstur á eftir honum er Grímur frá Efsta-Seli með fimm afkvæmi, þrjú kynbótahross og tvo keppnishross. Bræðurnir Álfur og Álfasteinn frá Selfossi eiga fjögur afkvæmi hvor.

Ef litið er lengra til baka þá sést að Orri frá Þúfu í Landeyjum er skráður afi 36 sinnum og Keilir frá Miðsitju er næstur á eftir honum með 12.

Fjórar hryssur eiga fleira en eitt afkvæmi skráð á mótinu. Minning fra Bendstrup er móðir tveggja en Muni frá Bendstrup sem skráður er í keppni er sonur hennar og kynbótahrossið List fra Bendstrup. Minning fran Margretehof á líka tvö afkvæmi sem verða sýnd á mótinu en það eru þeir Merkur og Mótor fra Smedjan. Fyrrum heimsmeistarinn Sæla frá Þóreyjarnúpi á líka tvo syni sem munu keppa á mótinu þá Skinfaxa og Sólon fra Lysholm. Hryssan Hrauna frá Húsavík á tvö afkvæmi líka, Hersir sem er sýndur í elsta flokki stóðhesta og Höfða sem er skráður í sportið fyrir hönd Austurríkis.

Ræktunarbúið Kronshof hefur ræktað flest hrossin á mótinu eða alls sjö hross. Fjögur verða sýnd í kynbótadómi fyrir Þýskaland og þrjú í íþróttakeppninni, tvö koma fram fyrir Þýskaland og eitt fyrir Noreg.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link