Spurning til keppnisnefndar LH
Á Feif þingi 2021 var samþykkt breyting á reglu 8.1.3.2. sem að fjallar um það hvernig dómarar skuli bregðast við missi hestur skeifu inn á hringvelli.
Í forkeppni er það alveg skýrt að missi hestur skeifu skal hann dæmdur úr leik í viðkomandi grein.
Í úrslitum skal hestur er missir skeifu hljóta einkuninna núll fyrir síðasta atriði sem að sýnt var í úrslitunum en heldur þeim tölum sem að gefnar hafa verið fram að því og ekki dæmdur úr leik.
Eftir samtal mitt við nokkra dómara virðist misbrestur á túlkun þessarar greinar í lögum og reglum þegar að kemur að úrslitareið í fimmgangi, þ.e.a.s. skeiðsprettum.
Allir eru á einu máli um það að allar gangtegundasýningar eru hver og ein eitt atriði sýnt í úrslitum, en ekki eru allir á einu máli varðandi skeiðið í úrslitum, er það eitt atriði allir sprettirnir eða er hver og einn sprettur eitt sýningaratriði?
Í úrslitum á Íslandsmóti missti hestur skeifu í þriðja spretti í úrslitum sem að er valfrjáls sprettur en getur að sama skapi talið til hæstu einkunnar í úrslitunum, eftir mikla reikistefnu var ákveðið að fyrri tveir sprettirnir teldu og að knapinn skyldi hljóta einkunn og sigraði úrslitin.
Mínar vangaveltur eru þær hvort að fimmgangur sé túlkaður á annan hátt en aðrar hringvallagreinar?
Samvæmt reglunni hefði hestur í öðrum hringvallagreinum hlotið einkuninna núll fyrir síðasta atriði t.d. yfirferðartölt sem að er skilgreint sem eitt atriði í úrslitum.
Sjálfur er ég gæðingadómari og gæðingakeppnin hefur stuðst við reglur Feif varðandi fótabúnað ofl.
Samkvæmt mínum skilningi á reglunni ætti hestur sem að missir skeifu í úrslitum td. á skeiði í seinni spretti sem að er valfrjáls sprettur að hljóta einkunnina 5.0 fyrir skeið en heldur sínum tölum í úrslitum fram að því og er ekki dæmdur úr leik og hlýtur sín verðlaun en endar væntanlega í neðsta sæti í úrslitum.
Því er mín beina spurning til keppnisnefndar LH, hvernig skuli túlka reglu 8.1.3.2. þegar að kemur að úrslitum?
Jón Þorberg Steindórsson
Gæðingadómari
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH