Spurt og svarað um Hrímnir Community
Alþjóðlegi kynbótadómarinn og FT-reiðkennarinn Arnar Bjarki Sigurðarson mun kynna og síðan svara spurningum í beinu streymi um Hrímnir Community, 19. nóvember kl. 18:00-19:00.
- https://www.facebook.com/events/1270725463284762/
- Ekki missa af beinu streymi með alþjóðlega kynbótadómaranum og FT-reiðkennaranum Arnari Bjarka Sigurðarsyni, 19. nóvember kl. 18:00-19:00.
- Arnar Bjarki mun kynna netsamfélagið Hrímnir Community, tilgang þess og notagildi fyrir reiðmenn íslenska hestsins um allan heim.
- Hrímnir Community er safn ókeypis kennslumyndbanda þar sem fagfólk leiðbeinir áhorfendum um þjálfun og meðferð íslenska hestsins.
Hrímnir er tæplega 20 ára íslenskt fjölskyldufyrirtæki sem selur hágæða hestavörur og -fatnaðog sendir til kaupenda um allan heim.
- Þrír heppnir þátttakendur í ljósmyndakeppni Hrímnis munu hljóta samfestinginn Jökul frá Hrímni, beisli eða skóbuxurEmblu reiðbuxur frá Jodphur.
Horses of Iceland og Hrímnir kynna: Beint streymi um Hrímnir Community, 19. nóvember kl. 18:00-19:00. Alþjóðlegi kynbótadómarinn og FT-reiðkennarinn Arnar Bjarki Sigurðarson mun kynna og síðan svara spurningum áhorfenda um netsamfélagið Hrímnir Community, segja frá tilgangi þess og notagildi fyrir reiðmenn íslenska hestsins um allan heim.
Á vefsvæðinu Hrímnir Community er safn ókeypis kennslumyndbanda þar sem fagfólk leiðbeinir áhorfendum um þjálfun og meðferð íslenska hestsins. Á vefsvæðinu eru hátt í 100 myndbönd og nýju efni er reglulega bætt í safnið.
Arnar Bjarki, sem er einn kennaranna, segir: „Að mínu mati gefur þetta ókeypis safn myndbanda reiðmönnum íslenska hestsins hugmyndir fyrir daglega þjálfun. Þetta er góð leið fyrir alla til að bæta kunnáttu sína á þjálfun og meðferð íslenska hestsins, hvar sem er, hvenær sem er.“
Í myndböndunum á Hrímnir Community er komið inn á fjölbreytt viðfangsefni, t.d. þjálfun gangtegunda, fimiæfingar, þjálfun utandyra, grunnvinnu, þjálfun ungra hesta, styrktaræfingar fyrir reiðmenn og undirbúning fyrir kynbótadóm.
Arnar Bjarki bætir við: „Í sumum myndbandanna er hægt að fá faglega innsýn í ræktunarmarkmið fyrir íslenska hestsinn og kynbótamat og eru þetta fyrstu myndbönd sinnar tegundar sem eru aðgengileg öllum á netinu.“
Í netviðburðinum á fimmtudaginn útskýrir Arnar Bjarki hvernig best sé að nýta myndbandasafnið og áhorfendur geta sent honum spurningar um Hrímnir Community sem hann svarar beint eða í Facebook-athugasemdum.
Á vefsvæði Hrímnis Community er einnig myndasafnið Hrímnir Moments þar sem notendur geta birt myndir af sínum Hrímnis-augnablikum. Áður en að spjallinu lýkur mun Arnar Bjarki velja þrjá sigurvegara af handahófi úr hópi þeirra ljósmyndara sem eiga 10 vinsælustu myndirnar í ljósmyndasamkeppni Hrímnis. Þeir geta unnið Jökul samfestinginn frá Hrímni, beisli eða skóbuxur.
Hrímnir Community byggir á samstarfi við menntaða þjálfara íslenska hestsins sem eru allir útskrifaðir frá Háskólanum á Hólum.
Rúnar Þór Guðbrandsson, stofnandi og eigandi Hrímnis, segir: „Við ákváðum að bjóða samfélagi okkar aðgengi að fríu, vönduðu efni um þjálfun og meðhöndlum íslenska hestsins. Við búum svo vel að vera með einstaklega gott fólk í okkar röðum, bæði starfsfólk og knapa sem við erum gríðarlega þakklát fyrir. Það eru forréttindi að fá að vinna með úrvalsliði fagfólks að þessu verkefni og við vonum að það komi hestaáhugafólki um allan heim til góða.“
Hrímnir Community hefur verið aðgengilegt á netinu síðan 2018 og allt frá upphafi hafa notendur veitt því frábærar umsagnir. „Sælir Hrímnismenn og takk fyrir myndböndin á netsamfélaginu! Ég nýt þess virkilega að horfa. Stundum horfi ég á myndband til að fá innblástur og fer síðan út og geri nákvæmlega sömu æfingar með íslenska hestinum mínum.“ Kristina Haglund á Messenger.
Um Hrímni
Hrímnir er tæplega 20 ára fjölskyldurekið fyrirtæki frá Íslandi sem framleiðir vandaðar vörur fyrir hesta og knapa um allan heim. Hrímnir deilir ástríðu sinni fyrir íslenska hestinum með vinum sínum og viðskiptavinum og Hrímnir Community er gjöf til unnenda og reiðmanna íslenska hestsins um allan heim.
Vefsíða: www.hrimnir.shop
Samfélagsmiðlar: Facebook, Instagram
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH