Spyrjum að leikslokum

  • 25. júní 2012
  • Fréttir
Spyrjum að leikslokum

Flestar þær hryssur sem sýndar hafa verið í morgun hafa lækkað frá þeim dómi sem þær hlutu í vor. Hluti skýringarinnar er sú að ferðum var fækkað úr 10 ferðum í 8, en þetta er í fyrsta sinn sem þetta er reynt. En hafa skal í huga að dómurinn sem hrossið hlaut í vor er byggður á dómi og yfirliti og því ekki hægt að bera þetta saman fyrr en yfirliti líkur.

Því er rétt að spyrja að leikslokum, en ljóst er samt að erfiðara er að standa við fyrri dóm nú þegar ferðum hefur verið fækkað, en ef allt sem sýnt sem alhliðahestur þarf að sýna þurfa knapar að nota til þess sjö ferðir. Þegar einungis eru 8 ferðir í boði þá má ekki mikið útaf bregða.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link