Staða framkvæmdarstjóra laus
Laus er til umsóknar staða framkvæmdastjóra hjá hestamannafélaginu Létti á Akureyri
Viðkomandi þarf að geta hafið störf fljótlega
Helstu verkefni:
• Daglegur rekstur, fjáröflun og fjármálastjórn
• Samskipti við stjórn og félagsmenn
• Viðburða- og verkefnastjórn
• Þróun og uppbygging hestamannafélagsins Léttis
• Vefstjórn
• Önnur tilfallandi verkefni
Hæfniskröfur:
• Menntun sem nýtist í starfi • Tölvukunnátta
• Frumkvæði og skipulögð vinnubrögð
• Þekking og reynsla í hestamennsku
• Góðir samskiptahæfileikar
Nánari upplýsingar veitir formaður félagsins, Hólmgeir Valdemarsson, á [email protected] og skal umsókn og ferilskrá sendast á sama netfang.
Umsóknarfrestur er til 10. september n.k.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH