Staða keppnismála
Opið málþing um stöðu keppnismála fimmtud 5 jan. kl.19.30 í Harðarbóli Mosfellsbæ. Félag tamningamanna heldur málþing um keppnismál. Fulltrúar íþróttadómarafélagsins, gæðingadómarafélagsins og knapa verða með tölu um stöðuna frá þeirra upplifun eftir síðasta keppnistímabil. Og svo gefst fundargestum tækifæri á að fá orðið og hafa áhrif.
Hvernig er staðan?
Hvað er gott?
Hvað þarf að bæta?
Hvetjum dómara og keppendur að mæta, saman getur við gert gott betur:)
Stjórn FT
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH