Stærstu stóðréttirnar framundan
Næstu tvær helgar fara fram stærstu stóðréttir á Íslandi, annars vegar í Skagafirði og hins vegar í V-Húnavatnssýslu.
Hinar árlegu Laufskálaréttir fara fram lau. 28. sept. nk. og verður mikið um dýrðir í Skagafirði að venju þá helgina. Fjörið hefst í Svaðastaðahöllinni á föstudagskvöldið, 27. sept., með gæðingum, gríni og söng. Stóðið er síðan rekið til réttar undir hádegi á laugardag, 28. sept. og réttarstörf hefjast kl. 13:00 og þá þurfa allir að vera mættir til þess að upplifa einstaka stemningu. Heimreksturinn úr réttinni er svo kapítuli út af fyrir sig, kjötsúpa á öðrum hvorum bæ og gleðin við völd. Síðast en ekki síst er svo stórdansleikur í Reiðhöllinni Svaðastöðum á laugardagskvöldið.
Helgina á eftir er það svo Víðidalstungurétt í Víðidal í V-Hún., en föstudaginn 4. október er stóði af Víðidalstunguheiði smalað til byggða. Það er mögnuð sjón að sjá stóðið renna heim í sveitina síðdegis á föstudeginum og eru allir velkomnir að upplifa þessa stemmingu með heimamönnum.
Kaffisala verður í skemmunni á Kolugili milli kl 14 og 17. Í réttarskúrnum er svo hægt að fá kjötsúpu frá kl 17.
Kl. 20.30 er svo opið hús í reiðhöllinni á Gauksmýri en þar er verið að vígja nýja aðstöðu.
Réttarstörf hefjast svo kl. 10 laugardaginn 5. október þegar stóðið verður rekið til réttar.
Í réttinni á laugardeginum verður uppboð á gæðingsefnum og happdrætti þar sem 1. vinningur er folald!
Miði í happdrættinu fæst með því að versla veitingar í réttarskúrnum.
Bændur á Stóru-Ásgeirsá bjóða gesti velkomna í hesthúsið milli kl 15 og 17 á laugadag.
Réttardansleikur í Víðihlíð á laugardagskvöld.
Í Víðidalstungurétt má jafnan sjá fjölda efnilegra unghrossa og bjóða Húnvetningar alla hjartanlega velkomna.
Það ætti engum að þurfa að leiðast næstu tvær helgar og tilvalið að skella sér í réttir, hitta skemmtilegt fólk og skoða flott hross!
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH