Stakkur og Diddi í annað sæti
Stakkur frá Halldórsstöðum hlaut rétt í þessu 8,68 og er sem stendur í 2. Sæti í forkeppni A-flokks gæðinga. Sigurbjörn Bárðarson ætlar sér eflaust stóra hluti með Stakk í ár en eini landsmótsbikarinn sem Diddi hefur ekki hampað er einmitt Gæðingabikar LH, farandgripur sem knapi sigurvegara A-flokks hlýtur.
Staða 20 efstu hrossa sem stendur er eftirfarandi:
- Fláki frá Blesastöðum 1A Þórður Þorgeirsson 7 Smári 8,79
- Stakkur frá Halldórsstöðum Sigurbjörn Bárðarson 16 Fákur 8,68
- Óttar frá Hvítárholti Súsanna Ólafsdóttir 15 Hörður 8,64
- Gustur frá Gýgjarhóli Guðmundur Björgvinsson 7 Snæfaxi 8,56
- Snævar Þór frá Eystra-Fróðholti Guðmundur Björgvinsson 8 Geysir 8,56
- Kvistur frá Skagaströnd Guðmundur Björgvinsson 9 Hörður 8,56
- Greifi frá Holtsmúla 1 Reynir Örn Pálmason 9 Hörður 8,55
- Dagur frá Strandarhöfði Stefán Friðgeirsson 17 Hringur 8,53
- Grunnur frá Grund II Sigursteinn Sumarliðason 8 Sörli 8,53
- Sálmur frá Halakoti Atli Guðmundsson 14 Sörli 8,52
- Hnokki frá Þúfum Mette Mannseth 9 Léttfeti 8,51
- Máttur frá Leirubakka Sigurður Vignir Matthíasson 9 Fákur 8,50
- Gjöll frá Skíðbakka III Guðmundur Björgvinsson 7 Sindri 8,50
- Sturla frá Hafsteinsstöðum Hinrik Bragason 14 Fákur 8,49
- Máni frá Hvoli Eyjólfur Þorsteinsson 7 Sörli 8,49
- Már frá Feti Viðar Ingólfsson 9 Fákur 8,49
- Frægur frá Flekkudal Sólon Morthens 10 Logi 8,48
- Seiður frá Flugumýri II Mette Mannseth 8 Stígandi 8,48
- Svali frá Sámsstöðum Höskuldur Jónsson 6 Léttir 8,46
- Trostan frá Auðsholtshjáleigu Þórdís Erla Gunnarsdóttir 10 Fákur 8,46
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH