Starfsheiti landsráðunautar aflagt

  • 7. janúar 2013
  • Fréttir
Starfsheiti landsráðunautar aflagt

Umfangsmiklar breytingar á leiðbeiningaþjónustu í landbúnaði standa fyrir dyrum. Hrossaræktin er þar ekki undanskilin en nær 100 ára saga starfsheitisins „Landsráðunautur í hrossarækt“  verða aflagt. Einnig mun núverandi fyrirkomulag starfa héraðsráðunauta taka gagngerum breytingum. Þetta kemur fram í grein Guðlaugs V. Antonssonar sem birtist í jólablaði Eiðfaxa.

 
„Sú skipting leiðbeiningaþjónustunnar sem verið hefur milli Bændasamtaka Íslands og búnaðarsambandanna mun renna sitt skeið að mestu og öll leiðbeiningaþjónusta færast undir einn hatt í hlutafélag í eigu bændasamtakanna. Í stað landsráðunauta verða sérstakir ábyrgðarmenn hverrar búgreinar. Ábyrgðarmenn taka yfir hlutverk landsráðunauta í þeim málum sem stjórnsýslan ætlar aðkomu þeirra og þeir verða einnig ritarar fagráðs viðkomandi búgreinar en ekki er gert ráð fyrir breytingum á fyrirkomulagi fagráðanna. Auk þess verða myndaðir faghópar sem samanstanda af áður nefndum ábyrðarmanni og öðrum ráðgjöfum í viðkomandi búgrein. Stefnt er að aukinni sérhæfingu ráðgjafa þannig að þeir vinni að mestu innan síns fagsviðs. Fyrirhugað er að hið nýja fyrirtæki stígi sín fyrstu skref um næst komandi áramót.“
 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link