Stefnir í frábæra skeiðleika á miðvikudaginn
Fyrstu skeiðleikar Baldvins og Þorvaldar og Skeiðfélagsins fara fram miðvikudagskvöldið 20.maí. Leikarnir hefjast klukkan 19:30.
Dagskrá
19:30 – 250 metra skeið
20:00 – 150 metra skeið
20:45 – 100 metra skeið
Margir af fljótustu skeiðhestum landsins eru skráðir til leiks og eftirvæntingin mikil fyrir því hvernig þeir koma undan þjálfun vetrarins. Mótið verður í beinni útsendingu á www.alendis.tv og í appinu „Alendis“ í App-store.
Þá mun www.lengjan.is opna fyrir veðmál á hverja grein og verður spennandi að sjá hvaða stuðla skeiðhestar hljóta en sú vinna fer nú fram hjá íslenskum getraunum.
Leikmenn (knapar), þjálfarar og dómarar mega ekki tippa á úrslit í móti sem þeir taka þátt í.
Eins og áður að þá veitir Hestavöruverslunin Baldvin og Þorvaldur stigahæsta knapa skeiðleikanna 100.000 króna gjafaúttekt í verslun sinni auk þess að gefa verðlaun til þriggja hæstu knapa á hverju móti í hverri grein.
Þá mun stigahæsti knapi ársins hljóta farandbikarinn „Öderinn“ sem gefinn er af Gunnari Arnarsyni og Kristbjörgu Eyvindsdóttur til minningar um Einar Öder Magnússon.
Ráslistar
| Holl | Knapi | Hestur |
| 250 metra skeið | ||
| 1 | Bjarni Bjarnason | Glotti frá Þóroddsstöðum |
| 1 | Hans Þór Hilmarsson | Máney frá Kanastöðum |
| 1 | Hinrik Bragason | Hind frá Efri-Mýrum |
| 2 | Ásmundur Ernir Snorrason | Fáfnir frá Efri-Rauðalæk |
| 2 | Sigurbjörn Bárðarson | Vökull frá Tunguhálsi II |
| 2 | Ólafur Örn Þórðarson | Lækur frá Skák |
| 3 | Árni Björn Pálsson | Seiður frá Hlíðarbergi |
| 3 | Gústaf Ásgeir Hinriksson | Rangá frá Torfunesi |
| 3 | Sigursteinn Sumarliðason | Krókus frá Dalbæ |
| 4 | Konráð Valur Sveinsson | Kjarkur frá Árbæjarhjáleigu II |
| 4 | Elvar Þormarsson | Tígull frá Bjarnastöðum |
| 5 | Bjarni Bjarnason | Jarl frá Þóroddsstöðum |
| 5 | Daníel Gunnarsson | Eining frá Einhamri 2 |
| 150 metra skeið | ||
| 1 | Sigurður Baldur Ríkharðsson | Sölvi frá Tjarnarlandi |
| 1 | Þórarinn Ragnarsson | Funi frá Hofi |
| 1 | Davíð Jónsson | Glóra frá Skógskoti |
| 2 | Bjarni Bjarnason | Þröm frá Þóroddsstöðum |
| 2 | Ævar Örn Guðjónsson | Spori frá Ytra-Dalsgerði |
| 2 | Daníel Gunnarsson | Vænting frá Mosfellsbæ |
| 3 | Jóhann Kristinn Ragnarsson | Þórvör frá Lækjarbotnum |
| 3 | Guðlaug Jóna Matthíasdóttir | Auðna frá Hlíðarfæti |
| 3 | Arnhildur Helgadóttir | Skíma frá Syðra-Langholti 4 |
| 4 | Hlynur Pálsson | Snafs frá Stóra-Hofi |
| 4 | Þráinn Ragnarsson | Blundur frá Skrúð |
| 4 | Hans Þór Hilmarsson | Vorsól frá Stóra-Vatnsskarði |
| 5 | Védís Huld Sigurðardóttir | Hrafnhetta frá Hvannstóði |
| 5 | Guðjón Sigurðsson | Stoð frá Hrafnagili |
| 5 | Þorgils Kári Sigurðsson | Vænting frá Sturlureykjum 2 |
| 6 | Þórdís Erla Gunnarsdóttir | Tindra frá Auðsholtshjáleigu |
| 6 | Camilla Petra Sigurðardóttir | Djörfung frá Skúfslæk |
| 6 | Glódís Rún Sigurðardóttir | Blikka frá Þóroddsstöðum |
| 7 | Hlynur Guðmundsson | Klaustri frá Hraunbæ |
| 7 | Þorgeir Ólafsson | Sólbrá frá Borgarnesi |
| 7 | Sigurbjörn Bárðarson | Hvanndal frá Oddhóli |
| 8 | Jóhann Magnússon | Óskastjarna frá Fitjum |
| 8 | Bjarni Bjarnason | Hljómur frá Þóroddsstöðum |
| 100 metra skeið | ||
| 1 | Jón Óskar Jóhannesson | Örvar frá Gljúfri |
| 2 | Ævar Örn Guðjónsson | Forsetning frá Miðdal |
| 3 | Bjarki Freyr Arngrímsson | Davíð frá Hlemmiskeiði 3 |
| 4 | Klara Sveinbjörnsdóttir | Gloría frá Grænumýri |
| 5 | Arnhildur Helgadóttir | Skíma frá Syðra-Langholti 4 |
| 6 | Konráð Valur Sveinsson | Kjarkur frá Árbæjarhjáleigu II |
| 7 | Viðar Ingólfsson | Ópall frá Miðási |
| 8 | Guðjón Sigurðsson | Stoð frá Hrafnagili |
| 9 | Árni Björn Pálsson | Óliver frá Hólaborg |
| 10 | Jóhann Magnússon | Fröken frá Bessastöðum |
| 11 | Ásmundur Ernir Snorrason | Fáfnir frá Efri-Rauðalæk |
| 12 | Sæmundur Þorbjörn Sæmundsson | Seyður frá Gýgjarhóli |
| 13 | Hinrik Bragason | Hind frá Efri-Mýrum |
| 14 | Þorgils Kári Sigurðsson | Gjóska frá Kolsholti 3 |
| 15 | Þórarinn Ragnarsson | Hákon frá Sámsstöðum |
| 16 | Elvar Þormarsson | Tígull frá Bjarnastöðum |
| 17 | Jakob Svavar Sigurðsson | Jarl frá Kílhrauni |
| 18 | Jóhanna Margrét Snorradóttir | Andri frá Lynghaga |
| 19 | Hlynur Guðmundsson | Klaustri frá Hraunbæ |
| 20 | Hanna Rún Ingibergsdóttir | Sólveig frá Kirkjubæ |
| 21 | Ævar Örn Guðjónsson | Elísa frá Efsta-Dal II |
| 22 | Birgitta Bjarnadóttir | Ögrunn frá Leirulæk |
| 23 | Jón Bjarni Smárason | Blævar frá Rauðalæk |
| 24 | Þorgeir Ólafsson | Sólbrá frá Borgarnesi |
| 25 | Árni Björn Pálsson | Ögri frá Horni I |
| 26 | Gústaf Ásgeir Hinriksson | Rangá frá Torfunesi |
| 27 | Sigursteinn Sumarliðason | Krókus frá Dalbæ |
| 28 | Daníel Gunnarsson | Skæruliði frá Djúpadal |
| 29 | Þorgils Kári Sigurðsson | Snædís frá Kolsholti 3 |
| 30 | Arnar Bjarki Sigurðarson | Njörður frá Bessastöðum |
| 31 | Teitur Árnason | Bandvöttur frá Miklabæ |
Styttu haustið með EiðfaxaTV