Stefnir í gott hestaár 2012
Hestamenn eru nú óðum að setja skaflajárnin undir gæðinga sína. Á myndinni lætur Baldvin Ari Guðlaugsson skyrpa úr hófum á Svínavatni.
Það stefnir í að árið 2012 verði gott hestaár. Alla vega er enginn peningaskortur hjá íslenskum almenningi ef marka má flugeldasýningarnar um áramótin. Innanlandsmarkaðurinn á reiðhestum ætti því að taka vel við sér í vetur.
Að vísu eru hey með minna móti og tíðin hefur ekki hjálpað til fram að þessu. En margir hafa gripið til þess ráðs að fækka hrossum og ennþá er ekki útlit fyrir að um alvarlegan heyskort verði að ræða, svo fremi að vori þokkalega. Jákvæðar afleiðingar grisjunar munu fljótt koma í ljós. Gæðastuðullinn hækkar, betri hrossin fá meiri athygli og fljótlega mun fólk fara að svipast um eftir nýjum, yngri og betri reiðhestum.
Tamningastöðvar eru víðast hvar á fullum snúningi eins og verið hefur undanfarin ár. Enda Landsmót hestamanna í Reykjavík næsta sumar og Fáksmenn staðráðnir í að halda það með slíkum glæsibrag að lengi verði í minnum haft.
Að lokum er svo rétt að minna á að aukning varð í hestaferðum hér á landi síðastliðið sumar og stefnir í enn meiri aukningu á þessu ári. Sá geiri hefur sogað til sín fjölda af þægilegum og nothæfum reiðhrossum, sem ekki teljast þó til „innanbæjar sporthesta“. Þannig að hestamenn geta gengið bjartsýnir inn í nýja árið.
Hestablaðið er þegar komið á skaflaskeifurnar og óskar áskrifendum og öðrum hestamönnum gleðilegs árs og þakkar liðin.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson