Stefnir í spennandi lokamót í Meistaradeildinni

  • 19. apríl 2021
  • Fréttir

Árni Björn og Jakob Svavar hafa oftar en ekki verið í efstu sætum í einstaklingskeppninni. Hér er Árni Björn efstur á palli árið 2016 og Jakob Svavar í öðru sæti. mynd: Eiðfaxi

Lokamót Meistaradeildar Líflands í hestaíþróttum fer fram í Ingólfshvoli laugardaginn 24.apríl og hefst klukkan 17:00. Keppt verður bæði í Tölti (T1) og flugskeiði í gegnum höllina. Spennan er mikil bæði í einstaklings- og liðakeppni.

Einungis fjórir knapar eiga möguleika á sigri

Þennan dag getur knapi mest hlotið 24 stig, fari svo að hann vinni báðar greinar.
Því er ljóst að einungis fjórir knapar eiga möguleika á því að hneppa hinn eftirsótta titil að verða Meistari Meistaradeildarinnar. Þetta eru þau Árni Björn Pálsson sem er á toppnum með 44 stig. Jakob Svavar Sigurðsson sem er með 38 stig, Eyrún Ýr Pálsdóttir sem er með 23 stig og Olil Amble sem er með 20 stig. Til þess að annað hvort Eyrún Ýr eða Olil Amble nái í toppsætið verða þær að treysta á það að þeir Árni Björn og Jakob nái í engin eða fá stig. Ef horft er á árangur síðustu ára verður það að teljast heldur ólíklegt, þó svo að allt sé að sjálfsögðu mögulegt í íþróttum.

Jakob Svavar er Meistari Meistaradeildarinnar síðustu tveggja ára

Árni Björn hefur verið í efstu 10 sætunum í öllum keppnisgreinum hingað til og er eini knapinn sem hefur leikið þann leik í vetur. Jakob Svavar hefur náð í stig í öllum greinum að undanskildu 150 metra skeiði.  Árni Björn hefur á síðustu 10 árum unnið deildina fjórum sinnum og þar af þrisvar í röð eða árin 2014, 2015 og 2016. Hann varð einnig efstur í stigakeppninni árið 2018.  Jakob Svavar getur unnið deildina í þriðja skiptið í röð en hann er sigurvegari síðustu tveggja ára.

Það er því engu logið þegar sagt er að líkurnar á því að Árni Björn eða Jakob Svavar standi uppi sem sigurvegarar séu yfirgnæfandi.

Árni Björn varð síðast efstur í einstaklingskeppni árið 2018

Spennandi liðakeppni

Í liðakeppninni er einnig spenna en línur þó farnar að skýrast. Á toppnum er lið Top Reiter, sem er sigursælt í deildinni og hefur á síðustu tíu árum sigrað liðakeppnina fjórum sinnum, ýmist undir eigin nafni eða í sameiginlegu liði með öðrum styrktaraðilum. Lið Hestvit/Árbakka hefur átt frábæru gengi að fagna í vetur og er ekki langt undan. Keppnisfólkið í því liði er til alls líklegt næsta laugardag. Meistararnir í liðakeppninni í fyrra, Hjarðartún, eru að svo stöddu í þriðja sætinu.

Augu hestaáhugafólks munu beinast að Ingólfshvoli næsta laugardag þar sem ekkert verður gefið eftir í einstaklings- og liðakeppni!

 

 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link