Stefnir þú á Landsmót?

  • 2. maí 2011
  • Fréttir
Stefnir þú á Landsmót?

Fræðsunefnd Fáks auglýsir undirbúning fyrir gæðingakeppni, með umsögn leiðbeinanda og  dómara fyrir 18 ára og eldri.

Gert er ráð fyrir að þátttakendur mæti með sinn keppnishest og ríði prógrammið í gæðingakeppni . Þátttakendur fá leiðsögn um það sem vel er gert og það sem betur má fara. Dómari gefur  þátttakanda  einkunn og þeir fá skriflega umsögn. Í boði er að kaupa sér  1, 2  eða 3 skipti.  Gert er ráð fyrir að hver þátttakandi  fái 10 mínútur. 

Dagsetningar eru  10.maí kl. 17:00 -19:00, 11.maí  kl.19:00-21:00 og 12.maí  frá kl. 17:00-19:00.

Staðsetning:  Hvammsvöllur.

Leiðbeinendur og  dómarar eru:
Þann 10.maí verða Ragnar Hinriksson og Helga Classen.
Þann 11.maí verða Róbert Petersen og Ragnar Petersen.
Þann 12. maí verða Edda Rún Ragnarsdóttir og Helga Classen.

Þetta námskeið er eingöngu ætlað félagsmönnum Fáks 18 ára og eldri.

Verð fyrir hvert skipti kr.  3.000.

Skráning: fimmtudaginn 5.maí frá kl. 19:00 –  20:00 í Reiðhöllinni og í síma 861-4041 og 898-1761.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link