Steinn frá Stíghúsi tekur á móti hryssum á Rauðalæk fram að Landsmóti
Stóðhesturinn Steinn frá Stíghúsi verður á húsnotkun á Efri-Rauðalæk fram að Landsmóti. Áhugasamir snúi sér til Evu Dyroy í síma, 8981029. Verð er 145,000 kr fyrir toll og 50.000 kr fyrir hagagöngu og húsmálið, alls 195,000 kr + vsk.
Að loknu Landsmóti fer Steinn norður í Húnavatnssýslu til Ingunnar Reynisdóttur dýralæknis á Syðri-Völlum og verður þar í sæðingum. Pantanir berist til Ingunnar í síma 8932835 og á netfangið ingunnr@simnet.is Verð fyrir fengna hryssu er 245.000 + vsk. Innifalið folatollur, sæðing, hagaganga og umönnun.
Steinn frá Stíghúsi er undan Vökul frá Efri-Brú og heiðursverðlaunahryssuni Álöfu frá Ketilsstöðum. Hann er 152 cm á herðar og hlaut í kynbótadómi á Vorsýningu Spretti 8,43 í aðaleinkunn, hann hlaut 8,61 fyrir sköpulag og 8,34 fyrir hæfileika. Sýnandi var Þorgeir Ólafsson
Höfuð 8.0 Bein neflína – Skarpt/þurrt
Háls/herðar/bógar 9.0 Háreistur – Hvelfd yfirlína – Afar háar herðar – Hátt settur
Bak og lend 8.5 Góð baklína – Breitt bak
Samræmi 9.0 Framhátt – Fótahátt – Langvaxið
Fótagerð 8.5 Sverir liðir – Þurrir fætur – Öflugar sinar
Réttleiki 7.5 Afturf.: Nágengir
Hófar 8.5 Þykkir hælar
Prúðleiki 8.0
Sköpulag 8.61
Hæfileikar
Tölt 9.0 Takthreint – Skrefmikið – Góð fótlyfta – Rúmt
Brokk 9.5 Takthreint – Há fótlyfta – Svifmikið – Ferðmikið – Góð fótlyfta – Framhátt
Skeið 5.0
Greitt stökk 9.0 Skrefmikið – Ferðmikið – Góð fótlyfta
Hægt stökk 8.5 Takthreint – Jafnvægisgott – Góð skreflengd
Samstarfsvilji 9.5 Mikil framhugsun – Þjálni
Fegurð í reið 9.0 Mikill fótaburður – Góður höfuðburður – Góð reising
Fet 7.5 Takthreint – Meðal skreflengd
Hæfileikar 8.34
Hægt tölt 8.5 Góð fótlyfta
Aðaleinkunn 8.43
Hæfileikar án skeiðs 8.95
Aðaleinkunn án skeiðs 8.83