Steinnes Ræktunarbú ársins í Austur-Húnavatnssýslu
Á dögunum var haldin Búgreinahátíð Austur Húnvetninga, var viðburðurinn vel sóttur og hin fínasta skemmtun.
Samtök Hrossabænda A-Hún veittu verðlaun til tveggja ára þar sem viðburðurinn féll niður síðasta ár og var ákveðið að bíða með verðlauna afhendingu til að geta veitt þau með viðhöfn.
Efstu hross árið 2022 voru eftirfarandi:
Efsta fjögurra vetra hryssan var Garún frá Hæli, hún hlaut fyrir sköpulag 8.19 og fyrir hæfileika 7.84, aðaleinkunn 7.96. Garún er undan Ísaki frá Þjórsárbakka og Blæsdótturinni Kenningu frá Ytra-Vallholti.
Efsta fimm vetra hryssan var Maísól frá Steinnesi, hún hlaut fyrir sköpulag 7.98 og fyrir hæfileika 8.27, aðaleinkunn 8.17. Maísól er undan Draupni frá Stuðlum og Gammsdótturinni Sunnu frá Steinnesi.
Efsta sex vetra hryssan var Eining frá Skagaströnd, hún hlaut fyrir sköpulag 8.42 og fyrir hæfileika 8.63, aðaleinkunn 8.50. Eining er undan Markúsi frá Langholtsparti og Hnokkadótturinni Þorlfríði frá Skagaströnd.
Efsta hryssan sjö vetra og eldri var Arna frá Hólabaki, hún hlaut fyrir sköpulag 8.42 og fyrir hæfileika 7.88 klárhryssa, aðaleinkunn 8.07. Arna er undan Styrki frá Króki og Gustsdótturinni Gerplu frá Hólabaki.
Efsti fjögurra vetra stóðhesturinn var Kaspar frá Steinnesi, hann hlaut fyrir sköpulag 8.24 og fyrir hæfileika 8.35, aðaleinkunn 8.31. Kaspar er undan Jarli frá Árbæjarhjáleigu og Kolfinnsdótturinni Kolfinnu frá Steinnesi.
Efsti fimm vetra stóðhesturinn var Drangur frá Steinnesi, hann hlaut fyrir sköpulag 8.73 og fyrir hæfileika 8.28, aðaleinkunn 8.44. Drangur er undan Draupni frá Stuðlum og Gammsdótturinni Ólgu frá Steinnesi.
Efsti sex vetra stóðhesturinn var Stæll frá Skagaströnd, hann hlaut fyrir sköpulag 8.13 og fyrir hæfileika 8.38, aðaleinkunn 8.29. Stæll er undan Ómi frá Kvistum og Orradótturinni Þjóð frá Skagaströnd.
Efsti stóðhesturinn sjö vetra og eldri var Kristall frá Skagaströnd, hann hlaut fyrir sköpulag 8.09 og fyrir hæfileika 8.50, aðaleinkunn 8.36. Stæll er undan Sæ frá Bakkakoti og Þóroddsdótturinni Þórdísi frá Skagaströnd.
Mjótt var á munum þegar velja átti ræktunarbú ársins þar sem bæði Steinnes og Skagaströnd höfðu sýnt verulega flottan árangur á árinu og voru bæði tilnefnd sem ræktunarbú ársins á landsvísu. Svo fór að Steinnes var valið og hlaut því titilin Ræktunarbú ársins í Austur-Húnavatnssýslu árið 2022.

Árið 2021Engin fjögurra vetra hryssa skilaði sér í fullnaðardóm.
Efsta fimm vetra hryssan var Eining frá Skagaströnd, hún hlaut fyrir sköpulag 8.60 og fyrir hæfileika 8.08, aðaleinkunn 8.26. Eining er undan Markúsi frá Langholtsparti og Hnokkadótturinni Þorlfríði frá Skagaströnd.
Efsta sex vetra hryssan var Snót frá Hólabaki, hún hlaut fyrir sköpulag 8.36 og fyrir hæfileika 7.95, aðaleinkunn 8.09. Snót er undan Hausta frá Kagaðarhóli og Glaðsdótturinni Sigurdísi frá Hólabaki.
Efsta hryssan sjö vetra og eldri var Óskadís frá Steinnesi, hún hlaut fyrir sköpulag 8.14 og fyrir hæfileika 8.30 , aðaleinkunn 8.25. Óskadís er undan Óskasteini frá Íbishóli og Gammsdótturinni Ólgu frá Steinnesi.
Efsti fjögurra vetra stóðhesturinn var Drangur frá Steinnesi, hann hlaut fyrir sköpulag 8.41 og fyrir hæfileika 8.28, aðaleinkunn 8.33. Drangur er undan Draupni frá Stuðlum og Gammsdótturinni Ólgu frá Steinnesi.
Efsti fimm vetra stóðhesturinn var Tengill frá Hofi, hann hlaut fyrir sköpulag 8.35 og fyrir hæfileika 8.43, aðaleinkunn 8.40. Tengill er undan Konserti frá Hofi og Logadótturinni Þeklu frá Hólum.
Efsti sex vetra stóðhesturinn var Kunningi frá Hofi, hann hlaut fyrir sköpulag 8.35 og fyrir hæfileika 8.49, aðaleinkunn 8.44. Kunningi er undan Spuna frá Vesturkoti og Kormáksdótturinni Kantötu frá Hofi.
Efsti stóðhesturinn sjö vetra og eldri var Haukur frá Fremstagili, hann hlaut fyrir sköpulag 8.09 og fyrir hæfileika 7.98, aðaleinkunn 8.02. Haukur er undan Þyt frá Skáney og Prinsdótturinni Prinsessu frá Grundarfirði.
Þegar kom að ræktunarbús valinu þá hafði hrossaræktarbúið Hof í Vatnsdal skarað fram úr, ekki eingöngu með þessa frábæru stóðhesta heldur einnig þá hafði Konsert frá Hofi náð lágmörkum til heiðursverðlauna fyrir afkvæmi.
Má segja að þessi tvö ár hafi verið með þeim bestu í Austur Húnavatnssýslu þar sem að mörg þessara hrossa hafi verið keppa á stærsta sviðinu á landsvísu, verður því gaman að sjá hvað gerist á næstu árum og ekki síður þegar að þessir glæsigripir fara að skila sér í framræktun.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH