Stemning á Brávöllum – spennandi úrslit á morgun
Varla fer það fram hjá neinum hestamanni að Íslandsmótið stendur nú yfir á Selfossi. Að sögn Margrétar K. Erlingsdóttur, fjölmiðlafulltrúa mótsins, voru gestir um 500 þegar mest var í gær og dag. Enda hafa veðurguðirnir verið Brávöllum hliðhollir, sólin hefur leikið við gesti þótt rignt hafi nokkrum dropum í kvöld. Góðu veðri er spáð á morgun og því er óhætt að hvetja fólki til að fjölmenna á Brávelli.
Úrslit flestra keppnisgreina fara fram á morgun en sýnt verður beint frá mótinu á RÚV frá kl. 13.
Dagskrá morgundagsins verður eftirfarandi:
10:30 250m skeið 2 sprettir seinni umferð
11:15 150m skeið 2 spretti seinni umferð
12:00 Matur.
13:00 A úrslit Tölt T1 Bein útsending hefst.
13:30 A úrslit Tölt T2
14:00 A úrslit fjórgangur
14:30 A úrslit fimmgangur
15:00 Mótsslit
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH