Stendur á höndum og borðar gulrætur til að undirbúa HM – viðtal við Árna Björn-

  • 18. júlí 2011
  • Fréttir
Stendur á höndum og borðar gulrætur til að undirbúa HM - viðtal við Árna Björn-

Hann varð Reykjavíkurmeistari í fimmgang 2008, sigraði A-flokk gæðinga á Landsmóti það sama ár. Þeir hömpuðu svo Íslandsmeistaratitlinum síðastliðna helgi. Aris frá Akureyri er að eini hesturinn sem hefur unnið stærstu sigra beggja keppnisforma í hestaíþróttum, þ.e. gæðingakeppnina á Landsmóti og íþróttakeppni  fimmgangs á Íslandsmóti.

Frægðarsól Arisar og knapa hans, Árna Björns Pálssonar, skein hátt árið 2008 þegar hann sigraði A-flokk gæðinga á Landsmóti en lítið farið fyrir honum síðan. Í vor mætti Árni Björn með Aris á Gullmótið, sýndu þeir þar kunnuglega takta og uppskáru öruggt sæti í fimmgangskeppni á HM í Austurríki.

„Á meðan ég nam norður í landi árið 2009 fékk Aris frí og sinnti hryssum. Hann var svo í þjálfun síðasta vetur en þá setti veikin strik í reikningin svo ekkert varð úr keppnisþátttöku. Í ár var svo sett stefnu á HM-úrtöku og okkar býður nú þetta mikla tækifæri ,“ segir landsliðsknapinn Árni Björn þegar Eiðfaxi náði tali af honum.

Árni Björn segir lærdómríkt að vera hluti af landsliðinu og að landsliðsstjórar fylgist vel með öllum undirbúningi. „Skemmtilegir hlutir eru að gerast í landsliðinu. Það komu til dæmis mjög áhugaverðir vinklar fram á fundi með Guðmundi Guðmundssyni, þjálfara íslenska handboltalandsliðsins, um daginn. Hann talaði þar um hugarfar og markmiðssetningu og það var athyglisvert að sjá hvernig landsliðið í handbolta lætur upp sitt prógram. Þótt öðruvísi sé farið þegar við erum í samskiptum við hest þá smitast jákvætt hugarfar alltaf inn í sýninguna sem við framkvæmum á vellinum.“

Að sögn Árna Björns hefur undirbúningur á Aris falist í mikilli þrekþjálfun að undanförnu. „Við förum yfir hluti og sjáum hvað hægt sé að gera betur þannig að allt virki þegar á hólminn verður komið. Sylvía, unnusta mín, hefur mikið komið að þjálfuninni með mér, gefið mér góð ráð og stutt við bakið á mér.  Ég reyni að hafa þjálfunina fjölbreytta en legg þó áherslu á þrekþjálfun. Fyrir höndum liggur langt ferðalag, flutningar og hlýrra veðurfar sem hefur mikil áhif á þrek hestanna og því þurfa þeir að vera í gríðarlega góðu líkamlegu formi,“ segir hann en Aris mun fljúga til meginlandsins næstkomandi sunnudag.

Árni Björn slær á létta strengi þegar hann er inntur eftir undirbúningi knapans. „Ég stend á höndum, geri armbeygjur og borða gulrætur. En að öllu gamni slepptu þá reyni ég að horfa jákvæðum augum á verkefnið. Markmið mitt er að við komum báðir fram í okkar allra besta formi þannig við verðum landi og þjóð til sóma,“ segir Árni Björn og bætir við að hann hafi lítið kynnt sér keppinautanna, heldur einbeiti hann sér eingöngu að sýningu sinni og Arisar. Þeir munu ríða í braut í St. Radegund miðvikudaginn 3. ágúst næstkomandi.

Meðfylgjandi eru nokkrar myndir af Aris og Árna á Íslandsmótinu um síðustu helgi.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link