Stendur vörð um frístundahestamennsku
„Þó íslenski hesturinn sé frábær keppnishestur er hann fyrst og fremst hestur víðáttunnar. Hann stendur flestum hestakynjum framar þegar kemur að ferðum um óbrotið land. Við viljum tryggja útreiðar og frelsi til þeirra. Enda er sá hópur hestamanna mjög stór, sem nýtur íslenska hestsins helst sem frístunda- og ferðahests,“ segir Samúel Örn Erlingsson. Hann tók nýlega sæti í nýrri nefnd sem alþjóðasamtökin FEIF hafa stofnað um reiðmennsku eða útreiðar í frístundum.
Nefndinni (e. Leisure Riding Committee) er ætlað að kortleggja aðstæður til útreiða og hestaferða í hverju aðildarlandi FEIF og efla stöðu hennar. „Við söfnum saman upplýsingum og förum í gegnum lagaramma í hverju landi. Í framhaldinu þurfum við að taka afstöðu til þess hvernig við viljum sjá stöðu og frelsi til útreiða, eða frístundareiðmennsku á íslenskum hestum,“ segir Samúel. Þó aðildarlöndin séu ólík og aðstæður fjölbreytilegar eru ákveðin grundvallaratriði sem þarf að standa vörð um. „Þekkt er víða um heim að menn geti farið nokkuð frjálst um á hestum, en þó alls kyns hömlur á því. Víðast hvar rekast hagsmunir á við aðra umferð – akandi, hjólandi og gangandi. Þá eru hagsmunaárekstrar algengir í ferðum um almenninga og einkalönd. Það er ákaflega margt sem getur komið upp í þessari umræðu. Hinn lög og hefðbundni réttur til ferðalaga um þjóðleiðir hefur verið véfengdur. Það eru uppi mismunandi sjónarmið um náttúruvernd og ferðir um t.d. þjóðgarða. Þarfir og skyldur til reiðvegagerðar eru í raun óskilgreindar. Það má t.d. segja að reiðvegir séu sem slíkir nýkomnir inn í vegalög hér á landi.“
Samúel segist að vonum spenntur fyrir hinu nýja verkefni sínu. Enda hefur hann fylgt íslenska hestinum á mörgum sviðum. Þekktastur er hann fyrir umfjöllun sína um íslenska hestinn í sjónvarpi, en hann er einnig ástríðuhestamaður. Hann stundar útreiðar stærstan hluta ársins og hefur starfað sem leiðsögumaður í hestaferðum síðastliðin sex sumur. „Ég hef afskaplega gaman af því að ferðast á hestum og hef farið um landið í mjög vaxandi mæli með vinum og sem leiðsögumaður síðastliðin 12 ár. Það mætti kannski segja að ég hafi misst mig svolítið í þessu síðustu árin. En þetta er nú áhugamál sem beið að mestu í 25 ár, á meðan ég var íþróttafréttamaður í fullu starfi.“
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH