Sterkir í elsta flokki
Þjóðverjar hafa um langt skeið verið í fremstu röð þegar kemur að ræktun íslenska hestsins. Hefðin er löng þar í landi og eru flest íslensk hross fædd þar utan upprunalandsins.
Þýskaland er eitt af löndum innan FEIF þar sem 4 vetra hross eru ekki dæmd og því eru engin þýsk 4 vetra hross á eftirfarandi lista.
Hæst dæmda hross Þjóðverja þetta árið er stóðhesturinn Baldur frá Hrafnsholt, en hann er sonur Starra frá Hvítanesi og Bráar frá Kálfholti með 8,56 í aðaleinkunn. Baldur er jafnvígur alhliðahestur með 8,5 fyrir tölt og brokk en 9,0 fyrir skeið. Hæsta einkunn hans er 9,5 fyrir vilja/geðslag.
Hæst dæmda hryssa þjóðvegja er Hnoss frá Erichshof hlaut 8,50 í aðaleinkunn en hún er dóttir Garra frá Reykjavík og Hjördísar frá Erichshof sem er dóttir Depils frá Votmúla. Hún er í dag í eigu Jóhanns Skúlasonar, en sonur hennar Herbert frá Slippen var á meðal hæst dæmdu 4 vetra hestum í fyrra.
Hér er listi yfir hæst dæmdu kynbótahross Þýskalands:
DE2009157727 Ari-Fróði frá Ruppiner Hof 8.14
DE2009234195 Gígja frá Kronshof II 8.25
DE2008157981 Djarfur frá Lækurhof 8.31
DE2008263534 Tófa frá Igelsburg 8.31
DE2005134188 Baldur frá Hrafnsholt 8.56
DE2007234119 Hnoss frá Erichshof 8.50
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH