Sterkt lið Svíþjóðar
Sænska meistaramótið fór fram um helgina og nú hefur sænska landsliðið verið kynnt. Lið fullorðinna samanstendur af níu knöpum en athygli vekur að flestir þeirra eru íslendingar. Eins er það með knapa kynbótahrossa sænska liðsins en þar eru allir knaparnir íslendingar.
Þrír knapar sem kepptu fyrir Ísland á síðasta Norðurlandamóti keppa nú fyrir Svíþjóð á HM, en það eru Erlingur Erlingsson á Herjólfi frá Ragnheiðarstöðum keppir nú fyrir Svíþjóð í tölti og fjórgangi, Eyjólfur Þorsteinsson á Háfeta frá Úlfsstöðum í tölti og Daníel Ingi Smárason – Hulda frá Margaretehof í skeiðgreinum.
Liðið er sem hér segir:
Guðmundur Einarsson – Sproti frá Sjávarborg
Vignir Jónasson – Ivan frá Hammarby
Erling Einarsson – Herjólfur frá Ragnheiðarstöðum
Magnús Skúlason – Valsa frá Brösarpsgården
Þorvaldur Árnason – Þyrnir frá Knubbo
Daníel Ingi Smárason – Hulda frá Margaretehof
Åsa Nevander – Blængur frá Árbæjarhjáleigu II
Helena Aðalsteinsdóttir – Kavaler frá Kleiva
Eyjólfur Þorsteinsson – Háfeti frá Úlfsstöðum
Hér eru viðtöl við Erling og Þorvald eftir sænska meistaramótið:
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH