Sterkur karakter
Nóta frá Stóra-Ási er fædd 1996 og hefur alið tíu afkvæmi. Fyrstu fimm þeirra hafa komið til kynbótadóms með glæsilegum árangri sem skilar hryssunni nú heiðursverðlaunum fyrir afkvæmi. Lára Kristín Gísladóttir hrossabóndi á Stóra-Ási er ræktandi og eigandi Nótu. Eiðfaxi náði tali af henni.
Lára segir léttleika og skemmtilegan vilja vera einkennandi fyrir afkvæmi Nótu. “Þau eru örviljug og skemmtileg. Þetta eru getumikil alhliðahross. Tryppin rúlla um á öllum gangi og hafa vakandi augu.”
Þessa grein og mun meira af skemmtilegu efni má nálgast í nýjasta tölublaði Eiðfaxa. Hægt er að gerast áskrifandi í síma 511 6622 eða með því að senda tölvupóst á [email protected]
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH