Stjórn félagsins var öll endurkjörin
Aðalfundur GDLH fór fram síðastliðinn föstudag. Vel var mætt á fundinn og sköpuðust líflegar umræður um næstu skref félagsins og framtíðarhorfur. Stjórn félagsins var öll endurkjörin. Góður andi ríkir meðal félagsmanna Gæðingadómarafélagsins, en á döfinni eru mörg verkefni, innanlands og utan, og ljóst að gæðingakeppnin er í mikilli sókn.
Stjórn GDLH skipa: Sigurður Straumfjörð, formaður. Aðrir í stjórn eru Erlendur Árnason, Davíð Jónsson, Pétur Vopni Sigurðsson, Ingibergur Árnason, Magnús Sigurjónsson og Lárus Hannesson.
Mynd af stjórn: Talið frá vinstri: Ingibergur, Erlendur, Sigurður, Lárus og Magnús (á myndina vantar Pétur og Davíð).
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH