Stjörnustríð í Víðidalnum
Það er spennandi dagur framundan á morgun á Reykjavíkurmóti Fáks í hestaíþróttum. Þekkt hross og knapar eru í úrslitum í flestum greinum, en það sem er meira spennandi en oftast áður er að sennilega hafa aldrei jafnmargir keppendur átt möguleika á að ná toppi í hverri grein.
Tvö hross frá Blesastöðum 1a eru í úrslitum í tölti meistara, þau Alfa og Óskar frá Blesastöðu. Sigursteinn Sumarliðason, Íslands- og Landsmótsmeistari frá í fyrra, er langefstur á Ölfu með 8,37 stig, en næstu keppendur, Hinrik Bragason á Smyrli frá Hrísum og Artemisia Bertus á Óskari eru með 7,87 stig. En dagsformið ræður, allt getur gerst. Flest þessi hross hafa skipst á sætum í keppni og stundum jafnvel ekki komist í úrslit á einu móti en toppað á öðru.
Sem dæmi um styrkleikann í „sportinu“ um þessar mundir þá eru stjörnur eins og Sara Ástþórsdóttir á Dívu frá Álfhólum og Hulda Gústafsdóttir á Sveig frá Varmadal í B úrslitum í tölti og fimm til sex hross sem ekki komast í B úrslit eru með yfir 7,0 í einkunn.
Sömu sögu er að segja í fjórgangi og fimmgangi. Enginn getur bókað sigur þar, þótt Eyjólfur Þorsteinsson verði að teljast afar líklegur í fjórganginum með Hlekk frá Þingnesi, sem að margra mati er einhver bragðmesti og athyglisverðasti keppnishestur sem fram hefur komið á þessari öld.
Vert er að vekja sérstaka athygli á 1. flokki í hringvallargreinunum, ekki síst í fimmganginum. Þar eru að koma inn nýir ferskir hestar, sem fyrr en seinna taka við af meistaraflokkshestunum. Margir þeirra eru ekki síðri, þótt ennþá sé verið að „máta“ þá, ef svo má segja. Það er í raun athyglisvert að í fimmgangi meistaraflokks eru einungis tíu keppendur en nærri fjörutíu í 1. flokki.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH