Stöð 2 Sport gerir þætti um Equsanadeildina í samstarfi við Eiðfaxa!

  • 6. febrúar 2020
  • Fréttir

Í kvöld fer fram fyrsta mótið í Equsanadeildinni þegar keppt er í fjórgangi. Deildin er með svipuðu sniði og undanfarin ár, en í henni keppa 16 lið sem hvert hefur á að skipa fimm knöpum.

Deildin hefur frá upphafi fengið mikla athygli og er það keppnisgleðin og samstaðan sem er ríkjandi. Mikill metnaður er meðal knapa að gera vel og hefur mátt sjá miklar framfarir í reiðmennsku ár frá ári. Bæði er um einstaklingskeppni og liðakeppni að ræða.

Stöð 2 Sport og Eiðfaxi gerðu með sér samstarfssamning í vikunni og verður keppniskvöldunum gerð góð skil í þáttum sem sýndir verða í vikunni á milli móta á Stöð 2 Sport. Þættirnir verða í umsjón Telmu Tómasson og Gísla Guðjónssonar.

 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link