Stóðaréttir haustsins

  • 8. september 2011
  • Fréttir
Stóðaréttir haustsins

Tími stóðarétta er runninn upp en fyrstu réttir fara fram í Miðfirði, í Vestur-Húnavatnssýslu á laugardag. Bændasamtökin hafa að tekið saman eftirfarandi lista yfir stóðaréttir haustsins.

Miðfjarðarrétt í Miðfirði, V. – Hún., laugardag 3. sept. kl. 9

Skarðarétt í Gönguskörðum, Skag., laugardag 17. sept. kl. 12-13

Staðarrétt í Skagafirði., laugardag 17. sept. um kl. 16

Skrapatungurétt í A.-Hún., sunnudag 18. sept. kl. 8-10

Silfrastaðarétt í Blönduhlíð, Skag., sunnudag 18. sept. um kl. 16

Hlíðarrétt við Bólstaðarhlíð, A.-Hún., sunnudag 18. sept. síðdegis

Deildardalsrétt í Skagafirði, föstudag 23. sept. kl. 13

Árhólarétt í Unadal, Skag., föstudag 23. sept. kl. 13

Auðkúlurétt við Svínavatn, A.-Hún., laugardag 24. sept. kl. 16

Laufskálarétt í Hjaltadal, Skag., laugardag 24. sept. kl. 13

Undirfellsrétt í Vatnsdal, A.-Hún., laugardag 24. sept. kl. 10

Þverárrétt í Vesturhópi, V.-Hún., laugardag 24. sept. um kl. 13

Tungurétt í Svarfaðardal, Eyf., laugardag 1. okt. kl. 10

Flókadalsrétt, Fljótum, Skag., laugardag 1. okt. kl. 13

Víðidalstungurétt í Víðidal, V.-Hún., laugardag 1. okt. kl. 10

Þverárrétt ytri, Eyjafjarðarsveit, laugardag 8. okt. kl. 10

Melgerðismelarétt í Eyjafjarðarsveit, laugardag 8. okt. kl. 13

Bændasamtökin benda þó á að alltaf geti slæðst villur í lista af þessu tagi. Því er þeim sem hyggjast kíkja í réttir á komandi hausti bent á að gott getur verið að hafa samband við heimamenn og fá staðfestingu á dagsetningum og tímasetningu réttanna.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link