Stóðhestablað Hestablaðsins tútnar út
Stóðhestablað Hestablaðsins kemur út í apríl. Blaðið verður meira að vöxtum en áður. Til viðbótar hefðbundnum stóðhestaauglýsingum og faggreinum um ræktun og reiðmennsku í kynbótasýningum verða nú fleiri greinar um einstaka stóðhesta og tölfræðilegar pælingar.
Kynbótahrossin á Auðsholtshjáleigu, hrossaræktarbúi ársins 2011, eru í úttekt.
Einnig stóðhesturinn Markús frá Langholtsparti, sem er hinn hljóðláti heiðursverðlaunahestur á meðal íslenskra stóðhesta.
Farið er yfir sögu Kjarvals frá Sauðárkróki, sem missti föður sinn háaldraður. Og margt fleira!
Ennþá er hægt að bæta stóðhestaauglýsingum í blaðið, í 1/2 síðu, 1/1 síðu, eða opnu!
Allir áskrifendur Hestablaðsins fá Stóðhestablaðið sent frítt heim. Áskriftarsími 511-6622
Auglýsir þú þinn stóðhest í áhugaverðasta stóðhestablaðinu?
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH