Stóðhestabókin kemur út 8 maí á Vorkvöldi í Reykjavík
Nú styttist í útgáfu Stóðhestabókarinnar sem hefur fest sig í sessi sem eitt vinsælasta rit hestamanna, ungra sem aldinna og er inni á kaffistofum og heimilum þeirra um heim allan.
Síðasta vor hélt Eiðfaxi Ræktunardag Eiðfaxa hátíðlegan í Víðidalnum í Reykjavík þar sem fram komu mörg frábær ræktunarhross sem einstaklingar, hluti af afkvæmahópum og ræktunarbúum.
Hátíðardagurinn Vorkvöld í Reykjavík
Til stendur að halda slíkan viðburð þann 8.maí á sama stað og í fyrra og mun hann nú heita Vorkvöld í Reykjavík. Viðburðurinn verður að sjálfsögðu haldinn samkvæmt þeim sóttvarnarreglum sem gilda og þá verður hann einnig sendur út í beinu streymi.
Þann sama dag mun Stóðhestabókin koma út og verða aðgengileg á dreifistöðum víðs vegar um landið þar sem áskrifendur Eiðfaxa geta nælt sér í eintak og aðrir keypt í lausasölu.
Stóðhestabókin sjálf er tæplega 350 blaðsíður. Í henni eru upplýsingar um hvorki fleiri né færri en 256 stóðhesta og hægt að fræðast um ættir og einkunnir þeirra auk fleiri gagnlegra upplýsinga fyrir áhugasama hrossaræktendur.
Sjáumst á Vorkvöldi í Reykjavík þann 8.maí!
Þeir sem hafa áhuga á því að koma fram með atriði á Vorkvöldi í Reykjavík er bent á að senda tölvupóst á [email protected].
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH