Stóðhestadagur Eiðfaxa á næstu grösum

  • 18. apríl 2012
  • Fréttir
Stóðhestadagur Eiðfaxa á næstu grösum

Sólin er komin hátt á loft og nú er tími reiðhallamóta að líða. Kominn er tími til að fara út að leika! Viti menn: Stóðhestadagur Eiðfaxa er á næstu grösum.

Stóðhestadagur er hugsaður sem vettvangur til að kynna marga af bestu stóðhestum landsins fyrir áhugasömum ræktendum. Stóðhestadagurinn fer fram utandyra á mótssvæði hestamannafélagsins Sleipnis að Brávöllum á Selfossi, laugardaginn 28. apríl nk.

Auk kynninga og sýninga á ungum og upprennandi og öðrum þekktari stóðhestum verður boðið upp á kennslusýningu í reiðhöll Sleipnis.

Auk þess verða heiðursjarlinn Gári frá Auðsholtshjáleigu, stólpaskepnan Víðir frá Prestsbakka og vonarstjarnan Lukku-Láki frá Stóra-Vatnsgarði til sýnis inn í reiðhöll félagsins og geta gestir og gangandi virt þessa glæsigripi fyrir sér.

Á næstu dögum munu nokkrir af þeim glæsilegu stóðhestum sem fram koma verða kynntir til leiks.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link