Stóðhestadagur í Rangárhöllinni 2010-

  • 14. janúar 2010
  • Fréttir
Stóðhestadagur í Rangárhöllinni 2010-

Stóðhestadagur verður haldinn í Rangárhöllinni á Hellu öðru sinni laugardaginn 3.apríl nk. og rétt fyrir áhugasama hrossaræktendur að taka daginn strax frá!

Dagurinn var haldinn í fyrsta skipti í fyrra og tókst gríðarlega vel, en þá kom fram fjöldi stóðhesta auk heiðurshestsins Kraflars frá Miðsitju sem þar sást í reið í síðasta sinn.

Alls komast 28 stóðhestar að á sýningunni og geta áhugasamir sent tölvupóst á Magnús Benediktsson á netfangið [email protected] til að panta pláss. Skráning á hvern hest kostar kr. 30.000 + vsk og er innifalið í því sýningartími, tveir aðgöngumiðar, stía í stóðhestahúsi, heilsíða í stóðhestablaði sem fylgir sýningunni og möguleiki á dreifingu kynningarefnis í anddyri reiðhallarinnar.

Sýnendum er alveg frjálst hvernig þeir sýna stóðhestana, með eða án afkvæma o.s.frv. Að hafa formið frjálst býður upp á fjölbreytni og skemmtun eins og gestir sýningarinnar í fyrra muna.

Sýningin mun öll verða tekin upp og send út á internetinu þannig að um frábært kynningartækifæri er að ræða fyrir stóðhestseigendur. Einnig er hægt að kaupa hálfsíðu auglýsingar í blaðinu eingöngu á kr. 15.000 + vsk. Skipulagning stóðhestadagsins er komin á fulla ferð og eru áhugasamir stóðhestseigendur hvattir til að hafa samband sem fyrst.

Kíkið á kynningarmyndbandið frá Hófapressunni hér fyrir neðan.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link