Stóðhestadagurinn 2013
Í fyrra stóð Eiðfaxi og Hestamannafélagið Sleipnir fyrir Stóðhestadegi á Brávöllum.
Talið var að um 1000 manns hafi mætt en aðgangur var ókeypis.
Nú í ár stendur Eiðfaxi og Hestablaðið fyrir samskonar viðburði í tengslum við útgáfu Stóðhestablaðsins 2013.
Þetta er frábær vettvangur til að kynna stóðhesta og afkvæmahópa þeirra en Stóðhestadagurinn 2013 verður laugardaginn 27.apríl.
Á Brávöllum er eitt besta mótssvæði landsins og nú í ár verður líkt og í fyrra boðið upp á sýnikennslu inn í reiðhöllinni og stefnt er á að þekktir stóðhestar verði þar í stíum svo að ræktendur geti litið þá augum.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH