STÓÐHESTAR Í ÁRBÆJARHJÁLEIGU II SUMARIÐ 2021

  • 5. júní 2021
  • Fréttir
Stóðhestarnir í Árbæjarhjáleigu II eru farnir að taka á móti hryssum.
Eftirtaldir hestar verða í boði í sumar:
 
IS2015186753 Hilmir frá Árbæjarhjáleigu II (8.64)
F: Spuni frá Vesturkoti (8,92)
M: Elding frá Árbæjarhjáleigu II
Kynbótadómur 2020. 8.50 – 8.72 = 8.64
BLUP 125
Hilmir er einstaklega heillandi ungur hestur með miklum fótaburði og góð gangskil ásamt fallegri byggingu og yndislegu geðslagi.
Verð fyrir fylfulla hryssu er 180.000 kr. 


IS2007186992 Jarl frá Árbæjarhjáleigu II (8.78)
F: Stáli frá Kjarri (8,76)
M: Elding frá Árbæjarhjáleigu II
Jarl hefur hlotið í aðaleinkunn 8.78 þar af 8.50 fyrir byggingu og 8.96 fyrir hæfileika.
Verð fyrir fylfulla hryssu er 150.000 kr.
Jarl hefur hlotið 1.verðlaun fyrir afkvæmi!
IS2015186669 Blesi frá Heysholti (8.43)
F: Jarl frá Árbæjarhjáleigu (8,78)
M: Vakning frá Heysholti
Fyrir byggingu er Blesi með 8.46 og þar af 10 fyrir prúðleika, 8.5 fyrir bak og lend, samræmi, fótagerð, réttleika og 9 hófa. Fyrir hæfileika er Blesi með 8.41. 8.43 í aðaleinkunn.
Þessi einstaklega fallegi 6 vetra hestur hefur allan pakkann. Frábæran lit, frábært geðslag, frábærar gangtegundir og frábært fas!
 
Nánari upplýsingar um hvern hest, myndbönd og kynbótadóm eru hér.
https://www.facebook.com/HeklaKatharina/
Til þess að panta undir hvern hest er hægt að hafa samband á netfanginu [email protected], í s: 8467960 eða á Facebook.com/HeklaKatharina

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link